Heilsa

Fimm frábærir kókosþeytingar

sigga dögg skrifar
Vísir/Getty

Þegar sumarið svífur yfir mann þá verður meira framboð af ávöxtum og mann langar oft í léttari mat og drykk.

Þá er kjörið að henda ávöxtum í blandara með ferskum kryddjurtum, skvettu af safa og svo setja í litlar flöskur sem geyma má í ísskápnum svo hægt sé að grípa með sér útí sólina (nú eða bara rigninguna).

Ekki aðeins eru þeir saðsamir heldur líka góð leið til að koma ávöxtum og grænmeti ofan í þá sem ekki eru duglegir við nart á slíku lostæti.

Hér eru nokkrar frábærar uppskriftir sem henta bæði fullorðnum og börnum.

Hægt er að skreyta þeytinginn með granóla ofan áVísir/Skjáskot

Hnetusmjörs- og heslihnetu þeytingur



1 og 1/2 bolli kókosmjólk (ekki er verra ef hún er frosin í klakaboxi)

1 msk súkkulaðiheslihnetusmjör (getur líka búið til þitt eigið eða notað Nutella)

2 msk hnetusmjör

1 bolli grísk jógúrt

1 msk kakónibbur

1/2 frosin banani



Skellir þessu í blandarann og þetta er komið.

Ef kókosmjólkin er ekki frosin þá getur verið gott að setja nokkra klakamola með útí blandarann.

Það má vel frysta alla ávexti sem ætlar að nota í þeytinga og þannig nýtast ávextir sem liggja undir skemmdum betur!

Vísir/Skjáskot

Hitabeltisþeytingur



1 bolli frosin hindber eða jarðaber (eða bæði!)

1 banani (ekki verra ef hann er frosin)

1 bolli kókosmjólk

1 bolli mangó (frosið)

1 til 1 og 1/2 bolli ananassafi

Skvetta af vanillu (dropum eða kornum úr 1 stöng)

1 kiwi

Hörfræ (ef vantar smá trefjar í mataræðið þitt)



Hentu öllu í blandarann.

Ef ávextirnir eru ekki frosnir getur verið gott að bæta klökum við.

Vísir/Skjáskot

Grænn kókosþeytingur



1/2 bolli kókosmjólk

1/2 bolli grísk jógúrt

1 bolli spínat

1 stór banani

1 grænt epli

2 msk kókosmjöl eða grófar kókosflögur (getur verið gott að létt rista inni í ofni eða á pönnu við vægan hita áður en setur útí en ekki nauðsynlegt)

1 bolli af klökum



Eins og með aðra þeytinga, hendir þessu í blandarann og hann er tilbúinn.



Vísir/Skjáskot

Mangó og goji berja þeytingur



1 til 1 og 1/2 bolli mangó (frosið)

3/4 bolli appelsínusafi + 2 tsk appelsínubörkur

2 msk chia fræ (má sleppa)

1 banani (helst frosin)

3/4 bolli kókosmjólk (eða möndlumjólk)

1/3 bolli hindber (frosin)

1/3 bolli jarðaber (frosin)

2 msk goji ber

1 tsk ferskt engifer (rifið)

1 tsk vanilludropar



Þú hendir öllu í blandarann nema chia fræjunum, þú setur þau bara seinast og blandar með skeið.

Ef þig langar að gera þetta extra smart þá getur þú blandað uppskriftina í tveimur skrefum þannig að fyrst er helming af ávöxtunum blandað með safa og því hellt í glas eða flösku og svo er seinni helming blandað og þá með mjólkinni og því svo hellt ofan á hinn.

Vísir/Getty

Kirsuberjakaffi þeytingur



10-12 fersk kirsuber, steinhreinsuð

1 bolli kalt kaffi (hægt er að frysta nýuppáhellt kaffi í klakaboxi til að nýta í slíka drykki og þá getur þú sleppt klökunum)

1 bolli vanillujógúrt (getur notað venjulega jógúrt/AB mjólk en þá bætt vanilludropum við)

2 bollar klakar

1 msk hunang

1 banani



Öllu hent í blandarann og þetta er tilbúið!


Tengdar fréttir

Fjölbreyttir og heilsusamlegir sumardrykkir

Heilsutorg.is inniheldur ýmsar sniðugar uppskriftir og fróðleik um heilsu. Lífið fékk leyfi til að birta girnilegar uppskriftir að heilsudrykkjum fyrir sumarið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×