Matur

Fjölbreyttir og heilsusamlegir sumardrykkir

Marín Manda skrifar
Heilsutorg.is inniheldur ýmsar sniðugar uppskriftir og fróðleik um heilsu. Lífið fékk leyfi til að birta girnilegar uppskriftir að heilsudrykkjum fyrir sumarið.

Bláberjaþeytingur

Frábær leið til að hefja daginn og styrkja sig áður en farið er í vinnuna.

½ bolli frosin eða fersk bláber

½ bolli vanillu- eða bláberjaskyr

2 matskeiðar vanilluís

1 matskeið grófar kókosflögur

Smávegis léttmjólk, D-vítamínbætt að sjálfsögðu

3-4 ísmolar

Öllu skellt í blandarann og voila!

Bláberjaþeytingur

Græna basabomban

250 mlkókosvatn

1 hnefi spínat

¼ stk. agúrka, skorin í litla bita

1 hnefi alfalfaspírur

Ferskur kóríander

2 stönglar fersk minta

2 stönglar fersk basilíka

¼ límóna, afhýdd

1 tsk. grænt duft

1 avókadó, afhýtt og skorið í bita

Setjið allt í blandarann og blandið vel saman. Ef þið viljið hafa þeytinginn kaldan, setjið þá nokkra klaka í hann.

Græna basabomban

Jarðarberja- og hamppróteindrykkur

18,1 g prótein, 39 g kolvetni, 9,8 g fita (323 kcal.)

2 dl frosin jarðarber

1 banani, vel þroskaður og ekki verra ef hann er frosinn

30 g hampprótein

2 dl möndlumjólk

Vatn og ísmolar ef þarf

Öllu blandað vel saman.

Jarðarberja- og hamppróteindrykkur

World Class BerjaBomba (Berjabomba Unnar)

100% hreinn trönuberjasafi (eða kókossafi)

½ bolli af ferskum bláberjum

½ bolli af ferskum jarðarberjum

½ banani

1 bolli ísmolar

Hrærið vel saman og njótið!

World Class BerjaBomba (Berjabomba Unnar)

Spínat- og grænkáls- þeytingur

4,67 g prótein, 47,9 g kolvetni, 3,25 g fita (238 kcal.)

Þessi drykkur er mjög frískandi og bragðgóður og gott að byrja daginn á einum slíkum. Ekki láta innihaldið hræða ykkur, drykkurinn mun án efa koma ykkur á óvart en bananinn og peran gefa mjúkt og sætt bragð auk þess sem kóríanderinn gefur ferskt og örlítið kryddað sítrusbragð. Drykkurinn er stútfullur af vítamínum og andoxunarefnum og ætti að gefa ykkur gott start inn í daginn.

1 vel þroskaður banani, ekki verra ef hann er frosinn

1 þroskuð pera

Góða lúka af spínati, u.þ.b. 30 g

3-4 stilkar af grænkáli, u.þ.b. 30 g

2 dl möndlumjólk (200 ml)

Kóríander eftir smekk, ég set alveg slatta enda gott og frískandi sítrusbragð af kryddjurtinni.

Allt sett í blandarann og blandað þar til silkimjúkt og fallegt.

Spínat- og grænkáls- þeytingur





Fleiri fréttir

Sjá meira


×