Formúla 1

Bílskúrinn: Endurkoman í Kanada

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Mercedes menn virðast hafa hrist af sér vonbrigðin í Mónakó.
Mercedes menn virðast hafa hrist af sér vonbrigðin í Mónakó. Vísir/Getty
Lewis Hamilton kom til baka eftir vonbrigðin í Kanada, Nico Rosberg glímdi við bremsuvandamál og Valtteri Bottas komst á verðlaunapall.

Allt þetta og ýmislegt annað merkilegt kemur til skoðunnar í Bílskúrnum, uppgjöri hvers kappaksturs hér á Vísi.

Hamilton var sprækur í keppninni og kátur að henni lokinni.Vísir/Getty
Endurkoma heimsmeistarans

Lewis Hamilton var allt að því örugglega að fara að vinna í Mónakó þegar hann tók þjónustuhlé. Þjónustuhléið var örlagaríkt, hann tapaði fyrsta sætinu til liðsfélaga síns, Nico Rosberg.

Gleði Hamilton með þriðja sætið var nákvæmlega engin og Bretinn var staðráðinn í að koma til baka í Kanada. Munurinn í stigakeppni ökumanna var orðinn einungis 10 stig Hamilton í vil. Mercedes bað hann afsökunnar og svo kom í ljós að Hamilton átti sjálfur stóan þátt í að þjónustuhléið örlagaríka átti sér stað.

Blaðamannafundurinn á fimmtudaginn sem leið varð allur sá vandræðalegasti þegar Hamilton tilkynnti að hann myndi ekki tjá sig um atburði síðustu keppni.

Meistarinn mætir svo á brautina í Montreal og á föstudaginn smellir hann Benzinum á varnarvegg í rigningu, ekki góð byrjun. Laugardagurinn byrjar ekki betur en Hamilton náði einungis níu hringjum á loka æfingunni fyrir tímatökuna.

Mórallinn hjá Hamilton var ekki hár fyrir tímatökuna en þrátt fyrir allt sýndi hann og sannaði að hann kann að keyra. Hamilton náði ráspól frekar auðveldlega, Rosberg veitti ekki mikla viðspyrnu. Keppnin sjálf var svo frekar róleg, Hamilton sparaði eldsneyti en Rosberg bremsur. Engin sérstök barátta skapaðist á milli þeirra og allir fóru sáttir heim.

Hamilton var snúinn aftur til vinnandi vegar. Vonandi er ekki allur vindur úr Rosberg. Vonandi helst spennan áfram í keppni ökumanna og vonandi tekst Hamilton ekki að stinga af.

Vettel skóp eigin vandræði og eigin velgengni í Kanada.Vísir/Getty
Sebastian Vettel vandræðagangur og velgengni

Rafall í bíl Vettel gaf sig í tímatökunni og hann datt út í fyrstu lotu. Hann var svo kallaður á teppið fyrir að taka fram úr meðan rauðum flöggum var veifað á æfingu fyrr um daginn.

Vettel ræsti 15. en endaði fimmti. Vettel sýndi þeim sem hafa efast um hæfni hans til að taka fram úr í tvo heimana um helgina. Þvílíkir taktar, allir hans heimsmeistaratitlar skynu í gegn í keppninni.

Vettel gat samt sjálfum sér um kennt að hafa komið sér í þessa stöðu. Hann á að vita betur eftir fjóra heimsmeistaratitla og 146 keppnir en að taka fram úr meðan rauðum flöggum er veifað. Algjör byrjendamistök, svo meira sé ekki sagt um það.

Raikkonen og Bottas á blaðamannafundi, Bottas hafði betur um helgina.Vísir/Getty
Finnska einvígið

Finnland státar af því að eiga flesta heimsmeistara í Formúlu 1 miðað við höfðatölu. Tölfræðitækni sem Íslendingar kannast vel við.

Finnsku ökumennirnir sem nú aka í Formúlu 1 háðu harða hildi í keppninni. Valtteri Bottas hafði að lokum betur gegn Kimi Raikkonen. Bottas varð þriðji og Raikkonen fjórði.

Eftir talsverðan eltingarleik gerði Raikkonen mistök sem kostuðu hann þriðja sætið. Skyndilegt innskot afls gerði það að verkum að Ferrari bíll Finnans snerist í næst síðustu beygju brautarinnar. Þetta var nett endursýning frá því í fyrra þegar sambærilegt aflinnskot sneri finnska ökumanninum á sama stað.

Yngri Finninn hafði betur og náði verðlaunasæti og varð fyrsti ökumaðurinn til þess í ár sem ekki ekur Mercedes eða Ferrari bíl. Hann er þó títt nefndur sem líklegur arftaki landa síns hjá Ferrari, jafnvel á næsta ári.

Grosjean var til vandræða um helgina en náði samt í nauðsynleg stig fyrir Lotus.Vísir/Getty
Romain Grosjean sjálfum sér verstur

Lotus átti loksins von á hrúgu af stigum og allt gekk vel framan af en svo sprengdi Romain Grosjean dekk á bíl sínum meðan hann var að hringa Will Stevens á Manor.

Grosjean hefur oft í gegnum tíðina tekist að skemma talsvert fyrir sjálfum sér. Hann hefur þó tekist að halda sig að mestu fyrir sig undanfarið og lítið verið í því að rekast á aðra fyrir eigin tilstilli. Franski ökumaðurinn reyndi of snemma að ná aftur keppnislínunni á brautinni. Raunar reyndi hann það áður en hann var alveg komin fram úr Stevens, með fyrrnefndum afleiðingum.

Hamilton horfir til himins. Ætli kappakstursguðirnir vaki yfir honum?Vísir/Getty
Maður keppninnar

Aldrei þessu vant er líklegast rétt að velja þann sem vann. Hamilton hélt haus alla keppnina þrátt fyrir ýmislegt sem á undan hafði gengið.

Dramað í Mónakó, vandræðalegur blaðamannafundur, vandræðaleg æfing á föstudaginn og slök æfing á laugardag bitu ekki á Bretanum.

Hamilton ók gríðarlega vel í tímatökunni og það sama má segja um keppnina. Erfið byrjun en fullkominn endir á helginni hjá heimsmeistaranum sem sýndi úr hverju hann er gerður í Kanada.


Tengdar fréttir

Hamilton á ráspól í Kanada

Lewis Hamilton á Mercedes náði sínum fjórða ráspól í Kanada. Nico Rosberg á Mercedes varð annar og Kimi Raikkonen á Ferrari varð þriðji.

Bílskúrinn: Mercedes með martraðir

Eftir rólega byrjun stóð Mónakó kappaksturinn undir væntingum hvað varðar glundroða og upplausn. Þvílíkir lokahringir sem leiddu til þess að Nico Rosberg vann og Sebastian Vettel varð í öðru sæti.

Hamilton: Ég stefni á að vinna í Kanada

Lewis Hamilton hefur átt afar góðu gengi að fagna í Kanada á undanförnum árum. Hann stefnir á að snúa aftur til vinnandi vegar eftir vonbrigðin í Mónakó.

Lewis Hamilton fyrstur í mark í Kanada

Lewis Hamitlon á Mercedes vann í Kanada, liðsfélagi hans Nico Rosberg varð annar og Valtteri Bottas á Williams varð þriðji. Það var sama hvað Rosberg reyndi, Hamilton átti alltaf svar.

Wolff: Við erum ekki alltaf hálfvitar

Lewis Hamilton á Mercedes kom fyrstur í mark, Nico Rosberg á Mercedes varð annar og Valtteri Bottas á Williams varð þriðji. Bottas var jafnframt fyrsti ökumaðurinn sem kemst á verðlaunapall í ár sem ekur ekki fyrir Mercedes eða Ferrari. Hver sagði hvað eftir keppnina?

Hamilton fljótastur á föstudagsæfingum

Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur á báðum æfingum dagsins. Rigning á seinni æfingunni sendi Hamilton útaf, hann endaði æfingunna á varnarvegg.

Rosberg: Á morgun eru möguleikar

Lewis Hamilton náði sínum fjórða ráspól í Kanada í dag. Hann ræsir fremstur í keppninni á morgun. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×