Formúla 1

Hamilton: Ég stefni á að vinna í Kanada

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton vann síðast í Kanada árið 2012 þá á McLaren.
Lewis Hamilton vann síðast í Kanada árið 2012 þá á McLaren. Vísir/Getty
Lewis Hamilton hefur átt afar góðu gengi að fagna í Kanada á undanförnum árum. Hann stefnir á að snúa aftur til vinnandi vegar eftir vonbrigðin í Mónakó.

Ríkjandi heimsmeistarinn segist búinn að yfirstíga vonbrigðin og stefna ótrauður á að vinna kanadíska kappaksturinn.

„Ég held að það sé ekkert meira að segja um Mónakó. Augljóslega var keppnin mikil vonbrigði fyrir mig og liðið. Við höfum lært af henni og höldum áfram í sameiningu að vanda,“ sagði Hamitlon.

„Ég vil bara fara að komast á brautina og ég gæti varla óskað eftir betri stað til að snúa aftur til vinnandi vegar en Montreal. Þetta hefur alltaf verið ein af mínum uppáhalds helgum. Baráttan er skemmtileg á brautinni, borgin er mjög spennandi og áhorfendur eru svo ástríðufullir,“ bætti heimsmeistarinn við.

Hamilton hefur reyndar einungis lokið keppni fjórum sinnum í sjö tilraunum í Kanada en af þeim fjórum sem hann hefur klárað hefur hann unnið þrjár. Keppnin sem hann vann ekki var ekki slæm en hann endaði þriðji þann sunnudaginn.

„Ég hef ekki alltaf haft heppnina með mér hér - en ég hef aldrei komið í mark án þess að vera á verðlaunapalli svo ég á góðar minningar héðan, þar á meðal er fyrsta keppnin sem ég vann. Ég veit að bíllinn er góður og lætur vel af stjórn og liðið styður mig eins vel og hægt er, við getum unnið aftur hér og ég stefni ekki á neitt minna,“ sagði Hamilton að lokum.


Tengdar fréttir

Hamilton: Ég á meira inni

Lewis Hamilton sýndi hvað hann getur á seinni æfingu gærdagsins. Hann var 0,7 sekúndum á undan liðsfélaga sínum hjá Mercedes, Nico Rosberg.

Bílskúrinn: Mercedes með martraðir

Eftir rólega byrjun stóð Mónakó kappaksturinn undir væntingum hvað varðar glundroða og upplausn. Þvílíkir lokahringir sem leiddu til þess að Nico Rosberg vann og Sebastian Vettel varð í öðru sæti.

Hamilton finnst ótrúlegt að geta náð Senna

Lewis Hamilton, ríkjandi heimsmeistari í Formúlu 1 segir það ótrúlega tilfinningu að nálgast þá mögnuðu tölfræði sem Ayrton Senna náði á sínum ferli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×