Formúla 1

Nico Rosberg vann á Spáni

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Rosberg var við stjórnvölin alla keppnina og leiddi frá upphafi til enda.
Rosberg var við stjórnvölin alla keppnina og leiddi frá upphafi til enda. Vísir/Getty
Nico Rosberg á Mercedes vann sína fyrstu keppni á tímabilinu í dag. Liðsfélagi hans, Lewis Hamilton varð í öðru sæti og Sebastian Vettel á Ferrari varð þriðji.

Hamilton missti Vettel fram úr sér í ræsingunni. Valtteri Bottas á Williams náði næstum því að komast fram úr Hamilton líka.

Kimi Raikkonen komst í fimmta sæti strax á fyrsta hring, eftir að hafa ræst sjöundi.

Vettel og Hamilton glímdu um annað sætið stóran hluta keppninnar. Hamilton tók þjónustuhlé á hring 33 og gerði tilraun til að komast fram úr Vettel með því að vera á nýjum dekkjum á undan Vettel og komast þá hraðar.

Vettel varð áfram út á brautinni og sinnti engu um að reyna að verjast þjónusuthléi Hamilton. Vettel tók þjónustuhlé á hring 40. Raikkonen tók þjónustuhlé á hring 42.

Fernando Alonso hætti keppni eftir að bremsurnar gáfu sig, það munaði minnstu að hann keyrði yfir manninn á fram tjakknum i þjónustuhléinu.

„Ég hafði áhyggjur af tjakkmanninum en sem betur fer náði hann að stökkva frá, ég hafði þegar misst bremsuafl og við vildum skoða hvort það væri eitthvað fast í bremsunum. Það var ekki og þá þurfti ég að hætta keppni,“ sagði Alonso.

Atvik í ræsingunni krydduðu keppni dagsins.Vísir/Getty
Rosberg tók sitt annað þjónustuhlé á hring 46 og Hamilton tók forystuna í keppninni. Mercedes sagði Rosberg strax eftir þjónustuhléið að Hamilton ætti eftir að stoppa einu sinni.

Pastor Maldonado þurfti að hætta keppni með brotinn afturvæng eftir 48 hringi. Hann hefur einungis lokið einni af fimm keppnum tímabilsins. Afturvængurinn brotnaði í samstuði við liðsfélaga hans hjá Lotus, Romain Grosjean.

Hamilton tók sitt síðasta þjónustuhlé á hring 51. Hann kom út á undan Vettel og hélt því öðru sæti á eftir Rosberg. Hamilton hóf þá að elta Rosberg og setti hvern hraðasta hringinn á fætur öðrum.

„Þetta er ekki hægt, það er betra að slaka á og halda stöðunni,“ fékk Hamilton að hreya í talstöðinni. „Er þetta ómögulegt, það er það sem ég vil vita,“ svaraði hann. „Þetta er ekki hægt á þeim hringjum sem eftir eru,“ var svarið við því.

Tímar Hamilton í framhaldinu sýndu að hann hlustaði ekki á þessi fyrirmæli liðsins. Hann hélt áfram að elta Rosberg og vildi ekki heyra meira um að hann gæti ekki náð Rosberg.

Baráttan um fjórða sæti á milli Bottas og Raikkonen var afar spennadi undir lokin. Báðir voru á mjög slitnum dekkjum og því lítið grip. Bottas hélt haus og hæelt fjórða sætinu.

Rosberg hefur minnkað bilið í baráttunni um heimsmeistaratitil ökumanna niður í 20 stig.


Tengdar fréttir

Moss: Rosberg vinnur Hamilton aldrei

Formúlu 1 goðsögnin Stirling Moss segir að Nico Rosberg eigi ekki möguleika á að vinna Lewis Hamilton í baráttunni um heimsmeistaratitil á meðan þeir eru í sama liði.

Nýtt útlit hjá McLaren

McLaren liðið hefur birt myndir af nýju útliti Formúlu 1 bíl sínum. Liðið vonar að nýja útlitið veiti því meðbyrinn sem það vantar.

Mercedes menn fljótastir á föstudagsæfingum

Nico Rosberg var fljótastur á fyrri æfingu dagsins á Spáni. Liðsfélagi hans hjá Mercedes, Lewis Hamilton varð annar. Hamilton var fljótastur á seinni æfingunni en Sebastian Vettel á Ferrari varð þá annar.

Hamilton: Ég hafði ekki hraðann

Nico Rosberg náði ráspól fyrir spænska kappaksturinn sem fram fer á morgun. Rosberg átti í spennandi baráttu við liðsfélaga sinn hjá Mercedes, Lewis Hamilton. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

Nico Rosberg á ráspól í Barselóna

Nico Rosberg náði ráspól í Barselóna, liðsfélagi hans hjá Mercedes, Lewis Hamilton varð annar og Sebastian Vettel á Ferrari þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×