Formúla 1

Lauda: Vél Ferrari jafn aflmikil og vél Mercedes

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Niki Lauda varð tvisvar heimsmeistari ökumanna með Ferrari, 1975 og 1977 en nú er hann sérstakur ráðgjafi hjá Mercedes.
Niki Lauda varð tvisvar heimsmeistari ökumanna með Ferrari, 1975 og 1977 en nú er hann sérstakur ráðgjafi hjá Mercedes. Vísir/Getty
Niki Lauda, Formúlu 1 goðsögn og sérstakur ráðgjafi Mercedes liðsins segir að Ferrari vélin og Mercedes vélin séu nú jafnar að afli.

Lauda segir framfarir ítalska liðsins afar miklar á milli ára. Hann telur að vélarnar, sem voru alls ekki sambærilegar í fyrra séu nú jafn aflmiklar.

Þrátt fyrir að Mercedes ökumaðurinn Lewis Hamilton hafi unnið þrjár af fjórum fyrstu keppnum tímabilsins hefur Ferrari verið skammt á eftir og stöðug ógn. Lauda telur að það sé einungis vegna auknins vélarafls.

„Ferrari hefur minnkað bilið síðan í fyrra svo nú er það nánast ekkert. Ég held að þeir hafi náð 45 hestöflum í viðbót út úr vélinni, svo ég get trúað því að þeir séu núna á pari við Mercedes vélina, hvað afl varðar,“ sagði fyrrum heimsmeistarinn og ráðgjafi Mercedes, Niki Lauda.

Munurinn er nú í bílasmíðinni og hönnuninni að mati Lauda. Hann bendir á að tímabilið sé ekki langt á veg komið og mikið af jöfnum og spennandi keppnum eigi enn eftir að fara fram.

„Ferrari er mjög öflugt lið, það er enginn vafi um það, sem kappaksturslið getur maður aldrei hugsað að það nái manni enginn. Það væru stór mistök,“ bætti Lauda við.

Í fyrra voru bæði Williams og Red Bull liðin á milli Mercedes sem var lang fremst og svo Ferrari sem var í miðri þvögunni.

Nú hefur Ferrari tekið stórt framfara skref og skilið Williams og Red Bull aðeins eftir.


Tengdar fréttir

Moss: Rosberg vinnur Hamilton aldrei

Formúlu 1 goðsögnin Stirling Moss segir að Nico Rosberg eigi ekki möguleika á að vinna Lewis Hamilton í baráttunni um heimsmeistaratitil á meðan þeir eru í sama liði.

Bílskúrinn: Barátta í Barein

Lewis Hamilton rétt náði að koma fyrstur í mark í spennandi keppni. Pastor Maldonado tókst ekki að klára og Valtteri Bottas varðist vel.

Eyðsluþak með snúning

Fyrrum forseti FIA, Max Mosley hefur lengi verið talsmaður einhverskonar eyðsluþaks í Formúlu 1. Hann hefur nú komið fram með nýja hugmynd um útfærslu á slíku.

Fimm vélar í stað fjögurra

Breytingar á reglugerðum í Formúlu 1 eru væntanlega sem heimila ökumanni að nota fimm vélar á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×