Formúla 1

Hamilton: Ég hafði ekki hraðann

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Efstu menn dagsins: Vettel, Rosberg og Hamilton.
Efstu menn dagsins: Vettel, Rosberg og Hamilton. Vísir/Getty
Nico Rosberg náði ráspól fyrir spænska kappaksturinn sem fram fer á morgun. Rosberg átti í spennandi baráttu við liðsfélaga sinn hjá Mercedes, Lewis Hamilton. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

„Góður dagur á skrifstofunni í dag, ráspólinn er mikilvægur hér enda erfitt að taka fram úr. Við þurfum að hafa auga á Ferrari, ég held samt að við höfum smá forskot á þá. Ræsingin verður væntanlega afar spennandi, en ég vona að þetta verði ekkert spenanndi,“ sagði maðurinn á ráspól, Nico Rosberg.

„Ég hafði ekki hraðann í dag. Aðstæður voru erfiðar í dag, Nico stóð sig vel hann hefur verið ánægðari í bílnum alla helgina. Ég er á hreinni hluta brautarinnar og ætti því að eiga góða ræsingu,“ sagði ríkjandi heimsmeistarinn.

„Af einhverjum ástæðum næ ég ekki gripi neinsstaðar og þarf eiginlega að giska á hvar gripið er. Á morgun er nýr dagur en auðvitað er ég ekki að ræsa neitt allt of framarlega, vonandi gegnur betur á morgun,“ sagði Kimi Raikkonen sem ræsir sjöundi á morgun.

„Við náðum framförum í dag. Við erum að ná þeim framförum sem við bjuggumst við hér í Barselóna. Við verðum nú bara að halda áfram að ná framförum. Ég stefni á góða ræsingu og góða baráttu á morgun til að gleðja heimamenn. Vonandi náum við í stig,“ sagði heimamaðurinn Fernando Alonso á McLaren sem ræsir af stað 13. á morgun.

„Ég held að tíunda sæti sé versta niðurstaða tímatöku hjá liðinu síðan ég kom hingað, svo þetta var ekki minn besti dagur,“ sagði hinn, þrátt fyrir allt, síbrosandi Daniel Ricciardo.

„Ég er afar sáttur við fimmta sætið, þetta er hálf ótrúlegt sérstaklega skemmtilegt á heimavelli fyrir framan alla þessa Spánverja,“ sagði Carlos Sainz hjá Toro Rosso.


Tengdar fréttir

Moss: Rosberg vinnur Hamilton aldrei

Formúlu 1 goðsögnin Stirling Moss segir að Nico Rosberg eigi ekki möguleika á að vinna Lewis Hamilton í baráttunni um heimsmeistaratitil á meðan þeir eru í sama liði.

Nýtt útlit hjá McLaren

McLaren liðið hefur birt myndir af nýju útliti Formúlu 1 bíl sínum. Liðið vonar að nýja útlitið veiti því meðbyrinn sem það vantar.

Mercedes menn fljótastir á föstudagsæfingum

Nico Rosberg var fljótastur á fyrri æfingu dagsins á Spáni. Liðsfélagi hans hjá Mercedes, Lewis Hamilton varð annar. Hamilton var fljótastur á seinni æfingunni en Sebastian Vettel á Ferrari varð þá annar.

Nico Rosberg á ráspól í Barselóna

Nico Rosberg náði ráspól í Barselóna, liðsfélagi hans hjá Mercedes, Lewis Hamilton varð annar og Sebastian Vettel á Ferrari þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×