Formúla 1

Hamilton: Ég ætla á undan í tímatökunni í Mónakó

Hamilton ætlar að fara á undan Rosberg í tímatökunni í Mónakó um næstu helgi.
Hamilton ætlar að fara á undan Rosberg í tímatökunni í Mónakó um næstu helgi. Vísir/Getty
Lewis Hamilton ætlar að tryggja að atburðir tímatökunnar í Mónakó í fyrra endurtaki sig ekki í ár.

Hjá Mercedes skiptast ökumenn á að taka ákvörðun um uppröðun þeirra í tímatöku. Að fara á eftir er yfirleitt betra, enda verða brautir yfirleitt betri eftir því sem líður á tímatökuna.

Nico Rosberg var á undan á lokaspretti tímatökunnar í fyrra og í fyrri tilrauninni í þriðju lotu náði hann ráspól. Rosberg gerði svo umdeild mistök í seinni tilraun sem leiddi til þess að Hamilton gat ekki reynt að bæta tíma Rosberg.

Hamilton sakaði liðsfélaga sinn um að hafa viljandi skemmt hringinn fyrir sér. Rosberg þvertók fyrir það.

Hamilton vill forðast endurtekningu á atburðum síðasta árs. Hann segist ætla að velja að fara á undan í ár.

„Í ár mun ég hafa valið í ár og mun fara á undan til að tryggja mig,“ sagði Hamilton.

„Ég er ekki að velta mér upp úr keppninni í fyrra, ég er bara kominn til að vinna. Ég hef ekki unnið hérna í langan tíma og ég ætla að vinna hörðum höndum að því að ná jafnvæginu réttu í bílnum,“ sagði Hamilton að lokum.


Tengdar fréttir

Nico Rosberg vann aftur í Mónakó

Þjóðverjinn Nico Rosberg leiddi hvern einasta hring í keppninni eftir að ná ráspól á umdeildan hátt í gær. Liðsfélagi Rosberg hjá Mercedes, Lewis Hamilton varð annar og Daniel Ricciardo á Red Bull varð þriðji.

Hakkinen: Hamilton þarf að læra að tapa

Mika Hakkinen og John Surtees, fyrrum heimsmeistarar í Formúlu 1 telja að viðbrögð Lewis Hamilton eftir Mónakó kappaksturinn hafi verið röng.

Rosberg á ráspól í Mónakó

Nico Rosberg náði ráspól í mikilvægustu tímatöku tímabilsins. Lewis Hamilton varð annar og Daniel Ricciardo varð þriðji. Brautin í Mónakó er mjög þröng og því erfitt að taka framúr. Þess vegna skiptir tímatakn í Mónakó meira máli en aðrar tímatökur.

Bílskúrinn: Baráttan í Barselóna

Nico Rosberg vann loksins keppni á tímabilinu. Hann hefur þá minnkað muninn í Lewis Hamilton niður í 20 stig. Liðsfélagarnir hjá Mercedes virðast ætla að berjast af hörku en sanngirni í ár, að minnsta kosti hingað til.

Rosberg: Ég hef sálfræðilegt forskot á Hamilton

Nico Rosberg telur að hann hafi nú sálfræðilegt forskot á lisðfélaga sinn hjá Mercedes, Lewis Hamilton. Rosberg telur að hann hafi snúið taflinu við þegar hann náði 22 stiga forskoti á Hamilton í síðustu keppni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×