Formúla 1

Rosberg á ráspól í Mónakó

Rosberg hafi betur gegn liðsfélaga sínum í dag.
Rosberg hafi betur gegn liðsfélaga sínum í dag. Vísir/Getty
Nico Rosberg náði ráspól í mikilvægustu tímatöku tímabilsins. Lewis Hamilton varð annar og Daniel Ricciardo varð þriðji. Brautin í Mónakó er mjög þröng og því erfitt að taka framúr. Þess vegna skiptir tímatakn í Mónakó meira máli en aðrar tímatökur.

Dekkin sem notuð eru um helgina eru mjúk og ofur mjúk dekk. Ofur mjúku dekkin skila um 1,4 sekúndum hraðari tíma á hverjum hring.



Marcus Ericcson á Caterham og Felipe Massa á Williams lentu saman þegar Ericsson var að reyna að koma sér upp í 16 efstu sætin. Massa datt út úr tímatökunni vegna þess að hann komst ekki á þjónustusvæðið undir eigin afli.

Eftir fyrsta hluta tímatökunnar sátu sex hægustu ökumennirnir eftir. Esteban Gutierrez og Adrian Sutil á Sauber, Jules Bianchi og Max Chilton á Marussia og Kamui Kobayashi og Marcus Ericsson á Caterham.

Massa átti ekki góðan dag.Vísir/Getty
Í öðrum hluta duttu sex hægustu ökumennirnir út. Fyrstur til að detta út þar var Felipe Massa á Williams, enda mátti hann ekki taka þátt. Nico Hulkenberg á Force India, Jenson Button á McLaren, Valtteri Bottas á Williams, Romain Grosjean og Pastor Maldonado á Lotus duttu út í öðrum hluta.

Í þriðja hlutanum gerði Rosberg mistök sem gerðu það að verkum að gulum flöggum var veifað. Þá þurftu allir sem á eftir komu að hægja á sér og þá missti Hamilton af tækifærinu til að bæta tíma Rosberg.

Lesa má úr viðbrögðum Hamilton eftir tímatökuna að hann telji hugsanlegt að Rosberg hafi gert viljandi mistök.

„Þetta var allt í lagi,“ sagði Hamilton þegar hann var spurður um tímatökuna. „Hver veit,“ sagði hann, spurður hvort Rosberg hafi gert þetta viljandi, svo bætti hann við „ég er ekki að segja það.“

Greinilega andar köldu milli Mercedes ökumannanna.

„Ég hélt að þetta væri búið eftir þessi mistök, brautin myndi batna og einhver annar myndi ná ráspól,“ sagði Rosberg.



Búast má við hörku slag í keppninni á morgun.

Ricciardo heldur áfram að vera bestur af restinni á eftir Mercedes mönnum.Vísir/Getty
Niðurstaða tímatökunnar:

1.Nico Rosberg - Mercedes

2.Lewis Hamilton - Mercedes

3.Daniel Ricciardo - Red Bull

4.Sebastian Vettel - Red Bull

5.Fernando Alonso - Ferrari

6.Kimi Raikkonen - Ferrari

7.Jean-Eric Vergne - Toro Rosso

8.Kevin Magnussen - McLaren

9.Daniil Kvyat - Toro Rosso

10.Sergio Perez - Force India

11.Nico Hulkenberg - Force India

12.Jenson Button - McLaren

13.Valtteri Bottas - Williams

14.Romain Grosjean - Lotus

15.Pastor Maldonado - Lotus

16.Felipe Massa - Williams

17.Esteban Gutierrez - Sauber

18.Adrian Sutil - Sauber

19.Jules Bianchi - Marussia

20.Max Chilton - Marussia

21.Kamui Kobayashi - Caterham

22.Marcus Ericsson - Caterham

Keppnin er á dagskrá Stöð 2 Sport klukkan 11:30 á morgun.


Tengdar fréttir

Alonso kom á óvart á æfingum í Mónakó

Spánverjinn Fernando Alonso á Ferrari kom á óvart á seinni æfingu dagsins í Mónakó og setti besta tímann. Tvær æfingar af þremur fyrir keppni helgarinnar fóru fram í dag.

Lotus trúir að bíllinn henti í Mónakó

Lotus liðið stefnir á enn eitt framfarastökkið í viðbót í Mónakó um helgina. Eftir að Romain Grosjean náði í fyrstu stig liðsins á tímabilinu í Barcelona. Liðið er bjartsýnt á enn betri árangur í Mónakó.

Rosberg þarf betri ræsingar

Nico Rosberg ætlar sér að stöðva sigurgöngu liðsfélaga síns hjá Mercedes, Lewis Hamilton í Mónakókappakstrinum næstu helgi. Rosberg segir að betri ræsingar séu lykilatriði ef það á að gerast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×