Formúla 1

Hamilton ætlar ekki að faðma Rosberg aftur

Við sjáum þessa menn ekki faðmast aftur á næstunni.
Við sjáum þessa menn ekki faðmast aftur á næstunni. vísir/getty
Það andar heldur betur köldu á milli liðsfélagana hjá Marcedes, Lewis Hamilton og Nico Rosberg.

Hamilton er brjálaður út í Rosberg fyrir að hafa "stolið" ráspól í Mónakó um síðustu helgi. Hann hefur látið hafa eftir sér að þeir séu ekki vinir lengur.

Þeir talast ekki við lengur og Hamilton er hættur að laumapúkast með andúð sína í garð Rosberg.

"Ég faðmaði hann í byrjun síðustu keppni. Bara svona til þess að reyna að halda sambandinu góðu. Eftir það sem hefur gerst í kjölfarið þá mun ég ekki faðma hann aftur á næstunni," sagði Hamilton pirraður.


Tengdar fréttir

Hamilton stundar ekki sálfræðihernað

Lewis Hamilton ökumaður Mercedes liðsins í Formúlu 1 neitar að hafa stundað sálfræðihernað gegn liðsfélögum sínum með ásettu ráði.

Nico Rosberg vann aftur í Mónakó

Þjóðverjinn Nico Rosberg leiddi hvern einasta hring í keppninni eftir að ná ráspól á umdeildan hátt í gær. Liðsfélagi Rosberg hjá Mercedes, Lewis Hamilton varð annar og Daniel Ricciardo á Red Bull varð þriðji.

Rosberg á ráspól í Mónakó

Nico Rosberg náði ráspól í mikilvægustu tímatöku tímabilsins. Lewis Hamilton varð annar og Daniel Ricciardo varð þriðji. Brautin í Mónakó er mjög þröng og því erfitt að taka framúr. Þess vegna skiptir tímatakn í Mónakó meira máli en aðrar tímatökur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×