Tuttugu drepnir í loftárás í Jemen Atli Ísleifsson skrifar 17. apríl 2015 10:21 Sádar standa fyrir loftárásunum sem beinast gegn Hútum sem hafa meðal annars náð höfuðborginni Sanaa á sitt vald. Vísir/AFP
Tuttugu manns féllu í loftárás sádi-arabíska hersins á bílalest uppreisnarsveita Húta í Jemen í morgun.Á vef NRK segir að skotið hafi verið á bílalestina þegar hún var á leið frá Al-Anad herstöðinni í útjaðri Adenborgar í vesturhluta landsins. Tveir skriðdrekar og fjórir brynvarðir bílar voru í bílalestinni. Sádar standa fyrir loftárásunum sem beinast gegn Hútum sem hafa meðal annars náð höfuðborginni Sanaa á sitt vald. Sókn Sáda nýtur stuðnings rúmlega tíu ríkja, þar á meðal Sameinuðu arabísku furstadæmanna, Barein, Kúveit og Katar. Stjórnarherir Egyptalands, Jórdaníu og Súdan taka einnig þátt í sókninni, auk þess að her Marokkó hefur boðið fram aðstoð. Bandaríkjastjórn segist hafa aðstoðað með því að veita Sádum upplýsingar og hernaðarráðgjöf. Tyrkir segjast jafnframt styðja sóknina. Íransstjórn hefur hins vegar farið fram á að loftárásir verði stöðvaðar þegar í stað, auk þess að Kínastjórn hefur lýst yfir áhyggjum og hvatt til viðræðna milli deiluaðila. Sameinuðu þjóðarnir hafa sömuleiðis farið fram á tafarlaust vopnahlé.
Mest lesið Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Innlent Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Erlent Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Innlent Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Erlent Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Erlent Umsókn Samhjálpar samþykkt en afgreiðslu frestað um viku Innlent Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Erlent Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Skárri staða í Álasundi Innlent Fleiri fréttir Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur „Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Gengst við kókaínneyslu rétt fyrir kosningar Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum Frost í kolefnisföngun í Svíþjóð Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Rýnt í kosningarnar í Færeyjum: Frændur slást um lögmannsstólinn John Alford fannst látinn í fangelsinu Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Sjá meira