Viðskipti innlent

Jógasetrið hagnast um 11 milljónir

ingvar haraldsson skrifar
Auður Bjarnadóttir er eigandi Jógasetursins. Á myndinni má sjá starfsmenn Hagstofu Íslands í jógatíma í Jógasetrinu.
Auður Bjarnadóttir er eigandi Jógasetursins. Á myndinni má sjá starfsmenn Hagstofu Íslands í jógatíma í Jógasetrinu. mynd/pjetur
Jógasetrið ehf., sem rekur jógamiðstöð undir sama nafni í Borgartúni hagnaðist um 11 milljónir á síðasta ári. Tekjur félagsins námu 42 milljónum en þar af nam sala á eignum 7 milljónum. Án eignasölunnar jukust tekjur félagsins engu síður úr 26 milljónum árið 2013 í 35 milljónir árið 2014.

Útgjöld af rekstri Jógasetursins, sem er í eigu Auðar Bjarnadóttur, námu 27,9 milljónum og því var hagnaður fyrir skatta og fjármagnsliði 14,5 milljónir króna.

Tíu milljónir króna voru greiddar í arð á árinu. Eigið fé Jógasetursins nemur 16,4 milljónum króna en skuldir þess 5,2 milljónum króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×