Viðskipti innlent

Viðskipti með bréf í Reitum fara rólega af stað

ingvar haraldsson skrifar
Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, hringdi inn opnun markaða í Kauphöllinni í morgun.
Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, hringdi inn opnun markaða í Kauphöllinni í morgun. vísir/valli
Viðskipti með hlutabréf í fasteignafélaginu Reiti hafa farið rólega af stað í Kauphöll Íslands.

Fyrirtækið var formlega skráð á markað í morgun.

Heildarvelta viðskipta hefur numið 127 milljónum króna en gengi bréfa er óbreytt.

Þá hafa 48 milljóna viðskipti orðið í fasteignafélaginu Reginn og verð bréfanna hefur lækkað um hálft prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×