Landsbankinn hlýtur gullmerki Jafnlaunaúttektar PwC Stefán Árni Pálsson skrifar 10. mars 2015 14:09 Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans. Vísir/Daníel/Vilhelm
Landsbankinn er fyrstur banka á Íslandi til að hljóta gullmerki Jafnlaunaúttektar PwC og er jafnframt stærsta fyrirtækið sem hefur undirgengist og staðist þá úttekt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Gullmerki jafnlaunavottunar veitist fyrirtækjum þar sem launamunur kynja er innan við 3,5% og staðfestir viðurkenningin því að launamunur kynja hjá Landsbankanum sé innan þeirra marka. Í Jafnlaunaúttekt PwC er gerð grein fyrir mun á grunnlaunum, föstum launum og heildarlaunum eftir kyni, þar sem tekið er mið af aldri, starfsaldri, menntun, starfaflokki, stöðu í skipuriti og vinnustundum. Rúmlega 1.100 manns starfa hjá Landsbankanum, þar af eru 39% karlar og 61% konur. Í tilkynningunni segir að Landsbankinn hafi á undanförnum árum lagt töluverða áherslu á jafnréttismál. Þar segir einnig að árið 2010 hafi bankinn sett sér það markmið að hlutur hvors kyns um sig í forystusveit bankans skyldi ekki vera undir 40%. „Í framkvæmdastjórn bankans eru fjórar konur og fjórir karlar að meðtöldum bankastjóra og bankinn uppfyllir einnig kröfur um jafnan hlut kvenna og karla í bankaráði. Í jafnréttisstefnu bankans kemur m.a. framað í Landsbankanum séu karlar og konur metin á eigin forsendum, hafi jafna möguleika og njóti sömu réttinda í starfi og til starfsframa. Í stefnunni kemur einnig fram að Landsbankinn stefni að jöfnu hlutfalli kynja meðal starfsmanna, að störf flokkist ekki sem karla- eða kvennastörf og að konum og körlum skuli greidd sömu laun fyrir jafn verðmæt störf,“ segir í tilkynningunni. „Í Landsbankanum höfum við lagt mikla áherslu á jafnréttismál á undanförnum árum. Gullmerki PwC er mikilvæg staðfesting á stöðu jafnréttismála í bankanum og hvatning til að viðhalda þeirri stöðu til framtíðar. Við teljum að jafnrétti efli bankann og styrki stöðu hans í samkeppni um góða starfsmenn,“ segir Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans.
Mest lesið Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Erlend gagnaver sögð skila litlu í þjóðarbúið Viðskipti erlent „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Engar reglur um merkingar á bílastæðum sem rukkað er fyrir Neytendur Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Samstarf Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira