Segir það gleðiefni að einhver vilji gefa félaginu hundrað milljónir Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 6. mars 2015 20:44
Saad bin Ibrahim Al-Ibrahim, sendiherra Sádi Arabíu fyrir Svíþjóð og Ísland, afhenti í desember síðastliðnum fjárframlag til Íslandsdeild Félags múslima í Skandinavíu en upphæðin nemur hundrað og sjötíu milljónum króna. Þeim fjármunum veitti viðtöku Hussein Al-Daoudi en hann var einn af þeim sem fjármagnaði kaup á Ýmishúsinu fyrir Menningarsetur múslima á sínum tíma. Imam Ahmad Seddeq, trúarleiðtogi Menningarsetursins, kannast ekki við þennan nýja styrk. Samkvæmt forsetaembættinu skoðaði sendiherrann lóð þar sem moska Félags múslima mun rísa í Reykjavík. „Mér finnst sérkennilegt að Ahmad komi af fjöllum vegna þess að það er nú mynd af hans vinnuveitanda, Ald-Daoudi, að taka við peningum frá sendiherra Sádi Arabíu í sendiráðinu í Stokkhólmi fyrir 1.2 milljónir bandaríkjadala,“ segir Sverrir Agnarsson, formaður stjórnar Félags íslenskra múslima.Sp. Blm. Er þetta sami styrkur og forseti Íslands kynnti á vefsvæði sínu eða nýr styrkur frá Sádi Arabíu? „Ég veit það hreinlega ekki. Ég veit að hitt félagið hefur gengið mjög harkalega fram í því að skapa peninga út á okkar sögu, sagst vera fyrsta múslimafélagið á Íslandi og eina félagið sem rekur barnastarf, sem okkur hefur alltaf þótt mjög sérkennilegt. Menningarsetur múslima varð til eftir klofning í röðum múslima á Íslandi en Salmann Tamimi, einn af imömum Félags múslima, hefur gagnrýnt múslima í Ýmishúsi fyrir öfgakenndar skoðanir og ofstæki.Gerir ráð fyrir að peningarnir séu ætlaðir Félagi íslenskra múslima Í yfirlýsingu sem Sverrir sendi fjölmiðlum í morgun kom fram að hvorki hann né stjórn Félags múslima hefði borist tilkynning um fjárstyrk frá Sádi Arabíu. Hann gerir þó ráð fyrir að peningarnir séu ætlaðir félaginu. Sverrir er þessa stundina staddur í Lundúnum þar sem hann safnar fé fyrir hönnunarsamkeppni um mosku Félags múslima. Moskan verður sex hundruð og sjötíu fermetrar, á tveimur hæðum og með tuttugu metra bænaturni, eldhúsi fyrir hundrað manns og aðstöðu til líksmurningar. „Það er gleðiefni að einhver vilji gefa okkur hundrað milljónir en fyrir okkur hefur það alltaf verið þannig að við höfum aldrei talað um annað.“ Sverrir segir það vera gleðiefni að einhver vilji gefa félaginu styrk en það verði aldrei gert ef skilyrði fylgja slíkum styrk. Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa ítrekað og árum saman bent á stórkostleg mannréttindabrot í Sádi Arabíu. Nægir að nefna mál bloggarans Raif Badawi sem var dæmdur til tíu ára fangelsisvistar fyrir að móðga íslam. Badawi þurfti að þola fimmtíu svipuhögg og var nær dauða en lífi eftir það. Á síðustu misserum hefur aftökum fjölgað verulega, af þessu ári hafa fjörutíu verið teknir af lífi í Sádi Arabíu. Á sama tíma hafa þarlend yfirvöld meinað öllum alþjóðlegum mannréttindasamtökum aðgengi inn í landið.Sp. blm. Kemur til greina að taka við þessum peningum frá Sádi Arabíu? „Þá er ég í þeirri stöðu að vera formaður stjórnar og það er stjórnin sem tekur afstöðu til þess. Það fyrsta sem ég geri þegar ég kem heim verður að setja mig inn í málið. Svo kemur stjórn saman og þá verður ákvörðun tekin,“ segir Sverrir. Fréttastofa hefur gert tilraunir í dag til að ná tali af helstu leikendum í þessu undarlega máli, þar á meðal Hussein Al-Daoudi, en lítið hefur gengið í þeim efnum. Miðað við staðreyndir málsins þá er hægt að draga þá ályktun að styrktarféð hafi ávallt átt að rata til Félags múslima en vegna tilrauna Menningarsetursins til að tryggja sér stuðning hafi sendiherrann tekinn þá ákvörðun að styrkja klofningssamtökin.
Tengdar fréttir Sádi Arabía leggur 135 milljónir í byggingu mosku Alibrahim sendiherra skoðaði í gær lóðina þar sem moskan mun rísa. 5. mars 2015 17:44 Menningarsetur múslima kannast ekki við milljónagjöf Sádi Arabíu Ahmad Seddeq segir að félaginu hafi aldrei verið boðin slík gjöf. 5. mars 2015 20:51 Segir félagið ekki hafa tekið afstöðu gegn gjöf Sádi Arabíu Sverrir Agnarsson tekur ekki undir orð Salmans Tamimi um að neita 135 milljónum til byggingar mosku. 5. mars 2015 22:32 Fréttaflutningur forseta Íslands veldur usla Sverrir Agnarsson einn talar fyrir hönd Félags múslíma á Íslandi. 6. mars 2015 09:37 Ekki þarf leyfi stjórnvalda vegna milljóna frá Sádi Arabíu Tveir aðilar hafa spurst fyrir í utanríkisráðuneytinu um hugsanleg fjárframlag frá Sádi-Arabíu. 6. mars 2015 14:32 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Sjá meira
Sádi Arabía leggur 135 milljónir í byggingu mosku Alibrahim sendiherra skoðaði í gær lóðina þar sem moskan mun rísa. 5. mars 2015 17:44
Menningarsetur múslima kannast ekki við milljónagjöf Sádi Arabíu Ahmad Seddeq segir að félaginu hafi aldrei verið boðin slík gjöf. 5. mars 2015 20:51
Segir félagið ekki hafa tekið afstöðu gegn gjöf Sádi Arabíu Sverrir Agnarsson tekur ekki undir orð Salmans Tamimi um að neita 135 milljónum til byggingar mosku. 5. mars 2015 22:32
Fréttaflutningur forseta Íslands veldur usla Sverrir Agnarsson einn talar fyrir hönd Félags múslíma á Íslandi. 6. mars 2015 09:37
Ekki þarf leyfi stjórnvalda vegna milljóna frá Sádi Arabíu Tveir aðilar hafa spurst fyrir í utanríkisráðuneytinu um hugsanleg fjárframlag frá Sádi-Arabíu. 6. mars 2015 14:32