James jafnaði stoðsendingametið | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. mars 2015 09:52 LeBron James er nú stoðsendingahæsti leikmaður í sögu Cleveland ásamt Mark Price. vísir/afp
Sjö leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. LeBron James jafnaði stoðsendingametið í sögu Cleveland Cavaliers þegar liðið vann 10 stiga sigur, 79-89, á Phoenix Suns. James gaf átta stoðsendingar á félaga sína í leiknum og hefur nú gefið 4206 stoðsendingar í treyju Cleveland, jafn margar og leikstjórnandinn Mark Price gaf á sínum tíma. Timofey Mozgov er stigahæstur hjá Cleveland með 19 stig en liðið hefur unnið 13 heimaleiki í röð. Houston Rockets vann sinn fyrsta útisigur í fjórum leikjum þegar liðið lagði Denver Nuggets að velli, 114-100. James Harden var að venju í aðalhlutverki hjá Houston, skoraði 28 stig og gaf sjö stoðsendingar. Corey Brewer átti góða innkomu af bekknum og skilaði 24 stigum fyrir Houston sem er í 3. sæti Vesturdeildarinnar. New Orleans Pelicans lenti 18 stigum undir gegn Memphis Grizzlies, næstbesta liðinu í Vesturdeildinni, en kom til baka og vann sex stiga sigur, 95-89. Tyreke Evans fór á kostum fyrir Pelikanana í seinni hálfleik þar sem hann skoraði 15 stig og gaf fimm stoðsendingar. Evans skoraði alls 26 stig og var stigahæstur hjá New Orleans. Anthony Davis kom næstur með 23 stig, 10 fráköst og fimm varin skot. New Orleans er í 9. sæti Vesturdeildarinnar og á í harðri baráttu við Oklahoma City Thunder um síðasta sætið í úrslitakeppninni.Úrslitin í nótt: Memphis 89-95 New Orleans Phoenix 79-89 Cleveland Sacramento 109-114 Miami Indiana 92-86 NY Knicks Atlanta 84-92 Philadelphia Portland 113-121 Minnesota Washington 85-91 Milwaukee Houston 114-100 DenverRicky Rubio dældi út stoðsendingum DeMarcus Cousins með smekklega troðslu Flottir varnartaktar
NBA Mest lesið Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Handbolti Snorri kynnti EM-strákana okkar Handbolti Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Handbolti „Eitt ótrúlegasta augnablik sem þú sérð í hvaða íþrótt sem er“ Sport Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Enski boltinn Fótboltamaður skotinn til bana Fótbolti Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Handbolti Evrópusumma Blika komin í 800 milljónir og gæti nálgast milljarð í kvöld Fótbolti Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Fleiri fréttir ÍR - Valur | Sjóðheitir gestir í Breiðholti Tindastóll - KR | Sá fyrsti eftir metaleikinn mikla Þór Þ. - Grindavík | Ólíkt hafast þau að Keflavík - Njarðvík | Montrétturinn í húfi fyrir jólin Liðsfélagar Guðbjargar ekki fæddir þegar hún spilaði fyrsta leikinn Þola þeir ekki gott umtal? „Helmingur minna leikmanna skilur ekki íslensku“ „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ KR á toppinn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Sjá meira