Curry ekki með og Golden State tapaði | Myndbönd Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. febrúar 2015 09:00 Klay Thompson skoraði 39 stig í nótt en það dugði ekki til fyrir Golden State. Vísir/Getty
Rodney Stucky skoraði 30 stig er Indiana vann góðan sigur á Golden State, 104-98, í NBA-deildinni í nótt. Golden State, sem er með besta árangur allra liða í deildinni, tapaði aðeins sínum tíunda leik á tímabilinu í nótt en liðið var án bakvarðarins Stephen Curry sem var frá vegna ökklameiðsla. Indiana komst yfir þegar tæpar fjórar mínútur voru eftir og CJ Miles, sem skoraði þrettán stig, setti niður mikilvæga þriggja stiga körfu á lokamínútunni. Klay Thompson skoraði 39 stig fyrir Golden State. Oklahoma City vann Denver, 119-94, þrátt fyrir að Kevin Durant hafi ekki verið með þar sem hann gekkst undir aðgerð á fæti í gær. Þó er búist við því að Durant snúi aftur á völlinn innan tíðar. Russel Westbrook skoraði 21 stig fyrir Oklahoma City og gaf sautján stoðsendingar þar að auki en það er persónulegt met hjá honum. Enes Kanter var með 20 stig og tólf fráköst fyrir liðið. Serge Ibaka var með 20 stig, átta fráköst og átta stoðsendingar. Oklahoma City hefur unnið sex leiki í röð og átta af síðustu níu. Liðið er í áttunda sæti vesturdeildarinnar og er nú komið með dágott forskot á næsta lið, Phoenix. Efsta lið austurdeildarinnar, Atlanta, vann Milwaukee á útivelli, 97-86. Atlanta hafði tapað tveimur leikjum í röð og sigurinn því kærkominn. Paul Millsap var með 23 stig og sextán fráköst og Kyle Korver tólf stig. New York Knicks er með versta árangur allra liða í deildinni og tapaði í gær fyrir Cleveland á heimavelli, 101-83. LeBron James og Kyrie Irving voru með átján stig hvor en sá fyrrnefndi er nú kominn í 22. sæti á stigalista NBA-deildarinnar frá upphafi. LA Lakers vann Boston, 118-111, í framlengdum leik. Jeremy Lin var með 25 stig og Lakers vann sinn fyrsta sigur eftir sjö tapleiki í röð og í aðeins annað sinn í átján leikjum. Isaiah Thomas skoraði 21 stig í sínum fyrsta leik með Boston en var rekinn af velli um miðjan fjórða leikhluta.Úrslit næturinnar: New York - Cleveland 83-101 Milwaukee - Atlanta 86-97 Detroit - Washington 106-89 Indiana - Golden State 104-98 Orlando - Philadelphia 103-98 Oklahoma City - Denver 119-94 Dallas - Charlotte 92-81 Portland - Memphis 92-98 LA Lakers - Boston 118-111
NBA Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu Sjá meira