Curry öflugur í endurkomunni | Myndbönd Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. febrúar 2015 07:15 Curry var öflugur í nótt. Vísir/AP
Golden State komst aftur á sigurbraut er liðið hafði betur gegn Washington í nótt, 114-107, og er því enn með bestan árangur allra liða í NBA-deildinni. Curry missti af tapinu gegn Indiana á sunnudagskvöld vegna smávægilegra meiðsla en spilaði í 34 mínútur í nótt og skoraði 32 stig. Hann setti niður fimm þrista í leiknum í níu tilraunum. Klay Thompson skoraði sautján stig fyrir Golden State og Marreese Speights sextán. Liðið hefur nú unnið fimm af síðustu sex leikjum sínum en Washington hefur tapað níu af síðust ellefu leikjum sínum. Cleveland vann Detroit, 102-93, þar sem Kevin Love bætti persónulegt met með því að skora átta þriggja stiga körfur. Hann skoraði 24 stig í leiknum en LeBron James var með nítján stig og ellefu fráköst. Oklahoma City vann Indiana, 105-92. Russell Westbrook var með þrefalda tvennu - 20 stig, ellefu fráköst og tíu stoðsendingar en þetta var sjöundi sigur Oklahoma City í röð og þriðja þrefalda tvenna Westbrook á tímabilinu. Dallas vann Toronto, 99-92, og þar með sinn þriðja sigur í röð. Monta Ellis var með 20 stig og Dirk Nowitzky átján. Dallas er í fimmta sæti vesturdeildarinnar.Úrslit næturinnar: Washington - Golden State 107-114 Detroit - Cleveland 93-102 Oklhoma City - Indiana 105-92 Dallas - Toronto 99-92
NBA Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Fleiri fréttir Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Sjá meira