Sögulegar sættir Jakob Bjarnar skrifar 16. febrúar 2015 16:37 Vinir á ný. Mörgum hlýnaði um hartarætur þegar þeir rt og eir heilsuðust innilega um helgina en árum saman var ískalt þeirra á milli. bblöndal
Gestir í útgáfuhófi nýja blaðsins Stundarinnar, sem haldið var á föstudaginn, ráku upp stór augu og hlýnaði mörgum beinlínis um hjartarætur þegar þeir sáu fornvinina Eirík Jónsson, ritstjóra Séð og heyrt, og Reyni Traustason, fyrrverandi ritstjóra DV, heilsast innilega. Eiríkur og Reynir, sem báðir eru gamlir í hettunni, unnu í áraraðir náið og vel saman, meðal annars á DV, þá á Fréttablaðinu og aftur á DV auk þess sem þeir voru með vinsæla útvarpsþætti á Talstöðinni og Útvarpi Sögu. Síðan myndaðist vík milli vina og andað hefur köldu á milli þeirra um árabil. Þetta var í kjölfar þess að Reynir lagði DV undir sig en ekki er almennilega vitað hvað kom upp á milli þeirra vina og vopnabræðra. En, síðast flugu skeytin á milli þeirra í haust þegar vefsíða Eiríks, eiríkurjónsson.is, var notuð til þess að greiða fyrir hlutabréf í DV í átökum um yfirráð yfir blaðinu sem lauk með því að Reynir var hrakinn burt. En, allt er gott sem endar vel, lengi lifir þó í gömlum glæðum og þessir gömlu félagar heilsuðust innilega og slógu á létta strengi svo eftir var tekið. Reyndar heyrðist því fleygt að þeir hafi rekist hvor á annan á bensínstöð fyrir nokkru, og þá þannig að ekki var fullur fjandskapur þar á milli en þarna náðust þessar söglegu sættir á mynd.
Mest lesið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið RJ Mitte er látinn Lífið Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp Kát á kynfræðslukarnivali Menning Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Fleiri fréttir „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Sjá meira