Stoudemire til Dallas Mavericks Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. febrúar 2015 07:02 Amar'e Stoudemire. Vísir/Getty
Amar'e Stoudemire mun klára tímabilið með liði Dallas Mavericks í NBA-deildinni í körfubolta samkvæmt bandarískum fjölmiðlum en hann var nýbúinn að fá sig lausan frá New York Knicks. Forráðamenn New York Knicks keyptu Stoudemire út úr risasamningi sínum sem átti annars að renna út í sumar. Stoudemire má þó ekki ganga frá samningi sínum við Dallas Mavericks fyrr en á miðvikudaginn eða þegar hann er endanlega laus allra mála hjá New York liðinu. Stoudemire er orðinn 32 ára gamall en hann var með 17,3 stig og 6,7 fráköst að meðaltali í 255 leikjum sínum með New York Knicks. Amar'e Stoudemire vildi komast í lið sem ætti möguleika á því að keppa um titilinn og New York Knicks var tilbúið að sjá á eftir honum. Fyrsti leikur Amar'e Stoudemire með Dallas Mavericks gæti verið strax á fimmtudaginn þegar liðið heimsækir Oklahoma City Thunder. Dallas þurfti að styrkja sig inn í teig en liðið lét frá sér menn þegar það fékk til sín leikstjórnandann Rajon Rondo frá Boston. Stoudemire var ein af stóru stjörnunum í deildinni þegar hann gerði fimm ára samning við New York Knicks árið 2010, samning sem gaf honum um hundrað milljónir dollara í vasann eða meira en 13 milljarða íslenskra króna. Hann hefur misst mikið af leikjum á þessum fimm árum vegna meiðsla og lítið hefur einnig gengið í að gera New York Knicks að liði sem gæti barist um titilinn.
NBA Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu Sjá meira