Fótbolti

Luis Figo vill stækka HM í fótbolta

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Luis Figo á Wembley í dag.
Luis Figo á Wembley í dag. Vísir/Getty
Luis Figo, hefur kynnt betur framboð sitt til forseta FIFA, en þessi fyrrum dýrasti og besti knattspyrnamaður í heimi ætlar að reyna að steypa Sepp Blatter af stóli.

Luis Figo vill meðal annars stækka heimsmeistarakeppnina, endurvekja gömlu rangstöðuregluna og auka möguleika dómara á því að nýta sér tæknina.

Luis Figo hélt blaðamannafund á Wembley í dag þar sem kynnti hvaða málefni eiga að skila honum sigri í forsetaframboðinu á móti Ali Bin Al Hussein prins, Michael van Praag og Sepp Blatter.

Figo ætlar ennfremur að deila út hluta af varasjóði FIFA til aðildarlanda sinna en Alþjóðaknattspyrnusambandið er stærsta sambandið í íþróttaheiminum.

Ísland ætti meiri möguleika á því að komast á HM ef keppnin stækkar en íslenska liði komst alla leið í umspil í síðustu keppni.

Þrír kostir eru í stöðunni fyrir framtíðafyrirkomulag HM í fótbolta. Í fyrsta lagi að halda núverandi fyrirkomulagi með 32 liðum, í öðru lagi að fjölga í 40 lið og í þriðja lagi að fjölga í 48 lið og skipta keppninni í tvennt og hafa síðan sér útsláttarkeppni í lokin.

 

Menn eins og Jose Mourinho og David Beckham hafa lýst yfir stuðningi við hinn 42 ára gamla Figo sem hefur sjálfur talað um að hreinsa til og endurvekja traust fólks á sambandinu.

„Ég er ekki maður sem situr aðgerðalaus til hliðar og neita að skipta mér að. Ég vil sjá öðruvísi leiðtogastefnu hjá FIFA og fá meiri sýnileika, meiri samvinnu og meiri samstöðu," sagði Luis Figo.

„Ég er heppinn að vera frjáls maður. Ég skulda engum neitt. Þess vegna á ég möguleika á því að starfa sem forseti fyrir fólkið. Fótboltinn er í mínu blóði og ég er tilbúinn að berjast fyrir breytingum innan FIFA," sagði Figo.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×