Matur

Sætkartöflusæla með pistasíum og trönuberjum

Rikka skrifar
visir/skjaskot

Kartöflur eru eitt vinsælasta hráefnið á Íslandi og hægt að nota á marga vegu. Hérna er meistarakokkurinn Eyþór Rúnarsson búinn að búa til uppskrift af sætkartöfluköku sem svíkur engann.

Sæludeig

450 gr smjör (við stofu hita)

325 gr hveiti

325 gr haframjöl

235 gr hrásykur

2 tsk lyftiduft

1 tsk vanilludropar

Setjið allt saman í hærivél og vinnið saman í 2 mín

Karamellusósa 

½ líter rjómi

165 gr púðursykur

¾ tsk salt

1 msk vanilla

Setjið allt saman í pott og sjóðið í ca. 35-45 mín. eða þar til að sósan fer að þykkna.

 Fylling

1 stk bökuð sæt kartafla

1 lime (börkur)

1 tsk salt

Karamellusósa eftir smekk

50 gr pistasíur gróft skornar

50 gr þurrkuð trönuber

Takið ca. 600 gr af deiginu og setjið í botninn og upp á kanta í kökuforminu. Smyrjið vel af karamellusósu yfir botninn. Setjið sætu kartöfluna í skál með lime berkinum og saltinu og stappið allt saman þar til kartaflan er orðin að mús. Smyrjið músinni yfir karamelluna og dreifið svo trönuberjunum og pistasíunum yfir músina. Takið ca. 150 gr. af deiginu og myljið yfir kökuna og dreifið svo karamellusósu yfir allt. Setjið inn í 180 gráðu heitan ofninn í 35 mín. Látið kökuna kólna við stofuhita í ca. 45 mín og takið úr forminu.


Tengdar fréttir

Laxatartar með estragonsósu

Eyþór Rúnarsson, meistarakokkur, töfrar hérna fram frábæran laxatartar sem tilvalin er í jólaboðið.

Svona gerirðu graflax

Eyþór Rúnarsson, sjónvarpskokkur er með uppskrift af hinum fullkomna grafna laxi með graflaxsósu sem svíkur engan.

Ómótstæðilegt kartöflusalat

Meistarakokkurinn Eyþór Rúnarsson fór á kostum í sjónvarpsþættinum Eldhúsið hans Eyþórs á Stöð 2 í gærkvöldi. Hann reiðir fram hvern grinilegan réttinn á eftir öðrum. Hérna er hann með ómótstæðilegt kartöflusalat sem hægt er að bera fram allan ársins hring.

Sveppahjúpað hátíðarhreindýr

Hreindýr er hátíðlegur matur. Eyþór Rúnarsson, sjónvarpskokkur er hér með frábæra uppskrift af hreindýralund sem hjúpuð er sveppum, kremaðri sveppasósu og graskers-,peru- og gráðaostasalati

Ómótstæðileg epla- og brómberjabaka

Eftirréttirnir eru rúsínan í pylsuendanum á jólaborðinu. Eyþór Rúnarsson, sjónvarpskokkur töfraði fram þessa ómótstæðilegu epla- og brómberjaböku sem allir geta leikið eftir

Jólaöndin hans Eyþórs

Eyþór Rúnarsson, matreiðslumeistari og þáttastjórnandi Eldhússins hans Eyþórs á Stöð 2 bjó til ómótstæðilega heilsteikta önd með sveppa og trönuberjafyllingu ásamt ljúffengri sósu og kartöflum í hátíðarbúning.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×