Jól

Steiktar rjúpubringur á kremuðu grænkáli með bláberjum og gráðosti

Rikka skrifar
visir/Rikka
Eyþór Rúnarssonsjónvarpskokkur færir áhorfendum rétta jólaandann heim í stofu með girnilegum hátíðaruppskriftum. Hér gefur hann lesendum Lífsins uppskrift að rjúpu sem tilvalin er sem forréttur á hátíðarhlaðborðið.



Steiktar rjúpubringur á kremuðu grænkáli með bláberjum og gráðosti

Fyrir 4

Rjúpubringa

4 stk. rjúpubringur

20 g smjör

olía til steikingar

sjávarsalt

svartur pipar úr kvörn

Setjið bringurnar á heita pönnu með olíu og brúnið í 45 sek. á annarri hliðinni, snúið þeim við og bætið smjörinu út á pönnuna. Steikið bringurnar á hinni hliðinni í 45 sek. og ausið smjörinu yfir á meðan. Setjið í eldfast mót með álpappír yfir og látið hvíla þar undir í 10 mín. Skerið bringurnar og kryddið með saltinu og piparnum.

Kremað grænkál með gráðosti

2 pokar grænkál

½ l rjómi

2 stk. skallotlaukur (gróft skorinn)

1 msk. grænmetisþurrkraftur

safi úr ½ sítrónu

sjávarsalt

svartur pipar úr kvörn

40 g gráðostur

Skerið stilkinn af grænkálinu og setjið í pott með skallotlauknum og rjómanum. Kveikið undir pottinum og setjið á rúmlega hálfan styrk. Bætið gráðostinum út í og sjóðið allt saman í 10 mín. Smakkið til með grænmetiskraftinum, sítrónusafanum og saltinu og piparnum.

Meðlæti

1 stk. fennel

1 box bláber

2 stk. radísur

Skerið radísurnar og fennelið þunnt í mandólíni eða með hníf og setjið á diskinn í kringum rjúpuna ásamt bláberjunum.


Tengdar fréttir

Laxatartar með estragonsósu

Eyþór Rúnarsson, meistarakokkur, töfrar hérna fram frábæran laxatartar sem tilvalin er í jólaboðið.

Svona gerirðu graflax

Eyþór Rúnarsson, sjónvarpskokkur er með uppskrift af hinum fullkomna grafna laxi með graflaxsósu sem svíkur engan.

Sveppahjúpað hátíðarhreindýr

Hreindýr er hátíðlegur matur. Eyþór Rúnarsson, sjónvarpskokkur er hér með frábæra uppskrift af hreindýralund sem hjúpuð er sveppum, kremaðri sveppasósu og graskers-,peru- og gráðaostasalati

Ómótstæðileg epla- og brómberjabaka

Eftirréttirnir eru rúsínan í pylsuendanum á jólaborðinu. Eyþór Rúnarsson, sjónvarpskokkur töfraði fram þessa ómótstæðilegu epla- og brómberjaböku sem allir geta leikið eftir

Jólaöndin hans Eyþórs

Eyþór Rúnarsson, matreiðslumeistari og þáttastjórnandi Eldhússins hans Eyþórs á Stöð 2 bjó til ómótstæðilega heilsteikta önd með sveppa og trönuberjafyllingu ásamt ljúffengri sósu og kartöflum í hátíðarbúning.






×