Jól

Jólaöndin hans Eyþórs

Rikka skrifar
visir/andri

Eyþór Rúnarsson, matreiðslumeistari og þáttastjórnandi Eldhússins hans Eyþórs á Stöð 2 bjó til ómótstæðilega heilsteikta önd með sveppa og trönuberjafyllingu ásamt ljúffengri sósu og kartöflum í hátíðarbúning.


Heilsteikt önd með sveppa og trönuberjafyllingu 

  • 1 stk aliönd

Pækill

  • 9 lítrar vatn
  • 360 gr salt
  • 30 stk piparkorn
  • 30 stk kórianderfræ
  • 6 stk kardimommur
  • 6 stk lárviðarlauf
  • 6 stk kanilstangir
  • 6 stk anisstjörnur

Sjóðið allt saman og kælið. Setjið öndina út í og látið hana standa í pæklinum í  20 tíma.

 Takið öndina úr pæklinum setjið hana á bakka með grind í botninn og látið hana standi í kælinum í 1 sólarhring.


Fylling

  • 4 hvítar brauðsneiðar (skerið skorpuna utan af)
  • 1 stk lítill skalottlaukur
  • 1stk portóbellósveppur
  • ½ meðalstór nípa
  • 1 box sveppir
  • 4 msk þurrkuð trönuber
  • ½  hvítlauksgeiri - fínt rifinn
  • 2 egg
  • ½ peli rjómi
  • 100 gr smjör
  • 4 msk hlynsíróp
  • 1 stk sítróna

Skrælið og skerið brauðið, skallotlauk, portóbellosveppinn, nípuna og sveppina niður í fallega bita og setjið í skál. 

Bætið trönuberjunum, hvítlauknum, eggjunum og rjómanum út í og kryddið með saltinu og piparnum. Bræðið smjörið og hellið yfir blönduna. 

Fyllið öndina og setjið hana í 150 gráðu heitan ofninn og eldið í ca 3 tíma. Ausið fitunni sem kemur af öndinni yfir á ca 30 mínútna fresti. 

Þegar tveir og hálfur tími eru liðnir penslið þið öndina með maple sírópinu og svo eldið þið öndina í 30 min í viðbót og penslið hana tvisvar sinnum á þeim tíma.


Andasósa

  • 1 stk andaháls
  • 3 stk laukar skrældur og gróft skorinn
  • 6 stk  hvítlauksgeirar
  • 1 stk lárviðarlauf
  • 4 sellerístilkar gróft skornir
  • ½ flaska rauðvín
  • 50 ml balsamic edik
  • 50 ml hlynsíróp
  • 1 liter kjúklingasoð
  • 500 ml vatn
  • kjötið úr 1 appelsínu
  • 150 gr smjör skorið í teninga
  • safi úr 1 appelsínu
  • ólífuolía til steikingar
  • sjávarsalt
  • svartur pipar úr kvörn

Hitið stóran pott með olíu í og setjið andahálsinn laukinn, hvítlaukinn og selleríið í hann og steikið þar til allt er orðið gullin brúnt. 

Hellið því næst rauðvínsedikinu út í og látið það sjóða niður um helming. Bætið svo rauðvíninu og látið það sjóða niður um helming líka. Setjið svo maple sírópið, kjúklingasoðið, appelsínuna og vatnið út í og látið sjóða við vægan hita í 1 klst. 

Sigtið soðið yfir í annan pott og látið það sjóða þar til það fer að þykkna. Bætið smjörinu smá saman út í og smakkið til með salti og appelsínusafanum.


Stökkar kartöflur með appelsínuberki og hvítlauk

  • 600 gr kartöflusmælki
  • 3 msk andafita
  • 2 greinar timian
  • 3 hvítlauksgeirar
  • Sjávarsalt
  • Svartur pipar úr kvörn
  • Ratte kartöflur

Skerið kartöflurnar í 6-8 bita fer eftir stærð og setjið þær í skál. Hitið andafituna upp og hellið henni yfir kartöflurnar. 

Skerið hvítlaukinn gróft niður, rífið laufin af timianinu og setjið bæði út í skálina. Blandið öllu saman og kryddið með saltinu og piparnum. Setjið inn í 150 gráðu heitan ofninn í 45 mín.


Tengdar fréttir

Laxatartar með estragonsósu

Eyþór Rúnarsson, meistarakokkur, töfrar hérna fram frábæran laxatartar sem tilvalin er í jólaboðið.

Meistarakokkur á skjánum

Eyþór Rúnarsson snýr aftur á Stöð 2 með gómsæta og girnilega matreiðsluþætti.

Svona gerirðu graflax

Eyþór Rúnarsson, sjónvarpskokkur er með uppskrift af hinum fullkomna grafna laxi með graflaxsósu sem svíkur engan.

Sveppahjúpað hátíðarhreindýr

Hreindýr er hátíðlegur matur. Eyþór Rúnarsson, sjónvarpskokkur er hér með frábæra uppskrift af hreindýralund sem hjúpuð er sveppum, kremaðri sveppasósu og graskers-,peru- og gráðaostasalati

Ómótstæðileg epla- og brómberjabaka

Eftirréttirnir eru rúsínan í pylsuendanum á jólaborðinu. Eyþór Rúnarsson, sjónvarpskokkur töfraði fram þessa ómótstæðilegu epla- og brómberjaböku sem allir geta leikið eftir








×