Jól

Humarsalat á smjördeigsbotni með grilluðum aspas og sítrónu

Rikka skrifar
visir/Rikka
Sjónvarpskokkurinn Eyþór Rúnarsson bjó til þetta girnilega humarsalat í þættinum Eldhúsið hans Eyþórs í gærkvöldi. Rétturinn er tilvalinn um hátíðarnar.

Humarsalat á smjördeigs- botni með grilluðum aspas og sítrónu

50 g majónes

50 g sýrður rjómi

500 g humar í skel, um 200 g pillaður humar

1 grænt epli, skrælt og skorið í litla kubba

Safi úr ½ sítrónu

½ hvítlauksrif, fínt rifið

1 msk. skorið dill

ólífuolía til steikingar

Sjávarsalt

Hvítur pipar úr kvörn.

Steikið humarinn upp úr ólífuolíunni og kryddið með saltinu og piparnum. Kælið humarinn.

Blandið saman majónesinu, sítrónusafanum og hvítlauknum. Smakkið blönduna til með saltinu. Skerið humarinn niður í bita og bætið út í blönduna með eplunum og dillinu. Smakkið til með salti og pipar eftir smekk.

Grillaður smáaspas

16 stk. smáaspas

4 msk. ólífuolía

Sjávarsalt

Svartur pipar úr kvörn

Setjið aspasinn í eldfast mót, hellið ólífuolíunni yfir hann og veltið honum vel upp úr olíunni. Setjið aspasinn á heita grillpönnu og grillið í tvær mínútur á hvorri hlið. Kryddið með sjávarsalti og svörtum pipar úr kvörn.

Smjördeigs botn



1 plata Myllu- smjördeig

Hvítlauksolía

Sjávarsalt

Hitið ofninn upp í 220 gráður. Skerið plötuna í fjóra bita. Penslið smjördeigið með hvítlauksolíu báðum megin. Setjið á bökunarplötu með smjörpappír í botninum og svo aðra plötu yfir. Bakið í 10-15 mínútur.

Setjið allt saman og berið fram með sítrónu.


Tengdar fréttir

Laxatartar með estragonsósu

Eyþór Rúnarsson, meistarakokkur, töfrar hérna fram frábæran laxatartar sem tilvalin er í jólaboðið.

Meistarakokkur á skjánum

Eyþór Rúnarsson snýr aftur á Stöð 2 með gómsæta og girnilega matreiðsluþætti.

Svona gerirðu graflax

Eyþór Rúnarsson, sjónvarpskokkur er með uppskrift af hinum fullkomna grafna laxi með graflaxsósu sem svíkur engan.

Sveppahjúpað hátíðarhreindýr

Hreindýr er hátíðlegur matur. Eyþór Rúnarsson, sjónvarpskokkur er hér með frábæra uppskrift af hreindýralund sem hjúpuð er sveppum, kremaðri sveppasósu og graskers-,peru- og gráðaostasalati

Ómótstæðileg epla- og brómberjabaka

Eftirréttirnir eru rúsínan í pylsuendanum á jólaborðinu. Eyþór Rúnarsson, sjónvarpskokkur töfraði fram þessa ómótstæðilegu epla- og brómberjaböku sem allir geta leikið eftir

Jólaöndin hans Eyþórs

Eyþór Rúnarsson, matreiðslumeistari og þáttastjórnandi Eldhússins hans Eyþórs á Stöð 2 bjó til ómótstæðilega heilsteikta önd með sveppa og trönuberjafyllingu ásamt ljúffengri sósu og kartöflum í hátíðarbúning.






×