Formúla 1

Horner: Vettel íhugaði að hætta í Formúlu 1

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Vettel íhugaði að hætta en skipti svo yfir til Ferrari þegar sæti losnaði þar.
Vettel íhugaði að hætta en skipti svo yfir til Ferrari þegar sæti losnaði þar. Vísir/Getty
Christian Horner segir Sebastian Vettel hafa íhugað að hætta í Formúlu 1 í fyrra. Titilvörn hans gekk hrikalega.

Horner, liðsstjóri Red Bull segir Vettel hafa orðið svo afhuga Formúlu 1 að hann hafi íhugað að leggja hjálminn á hilluna aðeins 26 ára.

„Hann var ekki ánægður með stefnuna sem F1 var að taka. Fjögur árin þar á undan höfðu gengið svo vel, með bíl sem hann elskaði að keyram svo breyttust hlutirnir mjög mikið skyndilega. Þá vöknuðu spurningar sem hann þurfti að svara. Hann leitaði upprunans, ók gó-kart bílum á miðju tímabili og fann aftur neistan sem kom honum þangað sem hann er og ástríðuna fyrir Formúlu 1,“ sagði Horner.

Margir spekingar höfðu spáð því að Vettel þyldi mótlæti illa. Hann átti erfitt tímabil og brást við með því að rifta samningi og skipta um lið. Vettel mun nú reyna að gera það sama og hetjan hans, Michael Schumacher, koma Ferrari aftur í stöðu yfirburða liða í Formúlu 1. Það eru átta ár síðan ítalski risinn landaði titili.


Tengdar fréttir

20 Formúlu 1 keppnir 2015

Keppnisdagatal ársins hefur tekið breytingum keppnirnar verða 20 en ekki 21 eins og til stóð. Ekkert verður af Kóreu kappakstrinum.

Ecclestone: Ég held að Hamilton verði meistari 2015

Bernie Ecclestone, formúlueinráður telur að Lewis Hamilton, ríkjandi heimsmeistari tryggji sér sinn þriðja titil í ár. Ecclestone segir að Hamilton sé "góður meistari“ fyrir íþróttina.

Ég er ekki töframaður

Nýr liðsstjóri Ferrari, Maurizio Arrivabene segist ekki geta gert nein kraftaverk fyrir næsta tímabil og því verði það líklega erfitt fyrir ítalska liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×