Lífið

Kevin Spacey blótaði í ræðu á Golden Globe

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hér er Spacey með styttuna frægu.
Hér er Spacey með styttuna frægu. Vísir/Getty
Leikarinn Kevin Spacey virðist hafa gleymt stað og stund þegar hann notaði blótsyrði í þakkarræðu á Golden Globe hátíðinni. Hann var valinn besti leikarinn í dramaþáttum. Þetta er í fyrsta sinn sem hann hlýtur hinn gullna hnött þrátt fyrir að hafa fengið átta tilnefningar.

Hann notaði hið margþekkta F-orð þegar hann lýsti undrun sinni yfir að hafa unnið.

„Þetta hlýtur að vera upphaf hefndartímabils míns. Þetta er í áttunda sinn sem ég hef verið tilnefndur. Ég F****** trúi því ekki að ég hafi unnið,“ sagði hann í ræðu sinni.

Hér að neðan má hlusta á ræðu Spacey.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×