Lífið

Justin Bieber er svona massaður

Kjaran Atli Kjartansson skrifar
Til vinstri er falsaða myndin af Bieber.
Til vinstri er falsaða myndin af Bieber.
Justin Bieber er eins massaður og hann lítur út fyrir að vera í undirfataauglýsingum frá Calvin Klein. Aðstandendur bandarískrar vefsíðu viðurkenna að hafa falsað myndir af poppstjörnunni, að vöðvar hans hafi verið minnkaðir. Þeir hafa beðist afsökunar á þessu uppátæki.

Bungan minnkuð

Í síðustu viku birti vefsíðan Breatheheavy.com myndir af Justin Bieber og sögðust aðstandendur síðunnar þær hafa verið teknar af Bieber áður en þeim var breytt í myndvinnsluforritum. Þeir sögðu að vöðvum hefði verið bætt á söngvarann auk þess sem bungan á nærbuxum hans hafi verið stækkuð.

Hótuðu málsókn

Starfslið söngvarans hótaði lögsókn vegna fréttarinnar, sem þeir sögðu ósanna. aðstandendur Breatheheavy.com hafa nú beðist afsökunnar og viðurkennt að það voru þeir sem fölsuðu myndirnar; þeir drógu úr vöðvum Bieber og minnkuðu bunguna á nærbuxunum hans.


Tengdar fréttir

Vöðvum virðist hafa verið bætt á Bieber

Svo virðist sem bætt hafi verið í upphandleggsvöðva, kviðvöðva og fleira með myndvinnsluforriti til þess að söngvarinn frægi líti betur út í undirfataauglýsingu Calvin Klein.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×