Sport

Lögreglan keyrði yfir háskólaleikmann

Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. vísir/getty
Hinn 22 ára gamli Garrett Gagne lést á hörmulegan hátt á Nýársdag.

Gagne, sem er lacrosse-leikmaður hjá St. Lawrence-háskólanum í Bandaríkjunum, lá á götu sem var ekki upplýst er lögreglujeppi keyrði yfir hann. Lögreglan sá hann aldrei.

Ekki er vitað hvað Gagne var að gera á götunni en lögreglan var að sinna útkalli er hún keyrði yfir hann.

Skólinn hefur þegar sett upp minningarsíðu fyrir Gagne og mun halda minningarathöfn við fyrsta tækifæri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×