Börnin hafa ekki fengið greitt Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 9. janúar 2015 11:48 Anna María Karlsdóttir og Hrönn Kristinsdóttir, framleiðendur kvikmyndarinnar Sumarbarna. Vísir/Ernir „
Það er í raun bara sama samkomulag í gangi og var seinasta haust, og var alltaf við foreldrana. Það sem hefur breyst eru greiðsludagsetningar og hlutirnir færðust á milli ára. Það var bæði út af persónulegu samkomulagi við einstaka foreldra og svo út af töfum á afgreiðslu fjármagns. Greiðslan fellur því til á þessu ári og það hefur aldrei neitt annað staðið til,“ segir Anna María Karlsdóttir annar framleiðandi kvikmyndarinnar Sumarbarna. Það vakti mikla athygli síðastliðið haust þegar í ljós kom að börn sem léku í myndinni höfðu ekki fengið greitt fyrir vinnu sína. Í samtali við Vísi í september á síðasta ári sagði Anna María að tafir á afgreiðslu fjármagns, meðal annars frá atvinnu-og nýsköpunarráðuneyti, til myndarinnar hafi verið eitthvað sem framleiðendur sáu ekki fyrir. Anna María segir að ráðuneytið hafi enn ekki greitt út til myndarinnar en eðlilegt sé að fjármagn til kvikmynda sé að koma inn fram yfir frumsýningu. Tökum á myndinni lauk í október 2013 og stóð til að frumsýna hana um áramótin. Aðspurð hvenær myndin verði frumsýnd segir Anna María erfitt að segja til um það. „Myndin er enn í framleiðslu og í raun er ekkert óeðlilegt við þennan framleiðslutíma. Myndin tafðist í klippingu, það var skipt um klippara, og það tekur alltaf tíma að ganga frá þannig hlutum. Það sem er svo eftir núna er hljóð og tónlist,“ segir Anna María. Hún segir að dagsetning frumsýningar Sumarbarna muni liggja fyrir fljótlega. Myndin er frumraun Guðrúnar Ragnarsdóttur leikstjóra við kvikmynd í fullri lengd. Heildarkostnaður við myndina er 214 milljónir en árið 2012 fékk hún 90 milljón króna styrk úr Kvikmyndasjóði Íslands.
Tengdar fréttir „Við biðjum börnin og aðstandendur þeirra innilega afsökunar“ Anna María Karlsdóttir og Hrönn Kristinsdóttir, framleiðendur kvikmyndarinnar Sumarbarna, hafa ekki greitt börnum sem fóru með hlutverk í myndinni laun. 9. september 2014 09:30 Mest lesið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira
„Við biðjum börnin og aðstandendur þeirra innilega afsökunar“ Anna María Karlsdóttir og Hrönn Kristinsdóttir, framleiðendur kvikmyndarinnar Sumarbarna, hafa ekki greitt börnum sem fóru með hlutverk í myndinni laun. 9. september 2014 09:30