„Við biðjum börnin og aðstandendur þeirra innilega afsökunar“ 9. september 2014 09:30 Framleiðendur myndarinnar Anna María Karlsdóttir og Hrönn Kristinsdóttir eru þaulreyndir kvikmyndaframleiðendur á Íslandi, en ellefu manns sem unnu við kvimyndina Sumarbörn hafa leitað til lögfræðings vegna vangoldinna launa fyrir vinnu sína við myndina. „
Okkur þykir afar leitt hversu hefur dregist að greiða þeim hæfileikaríku og duglegu börnum sem tóku þátt í gerð myndarinnar Sumarbörn,“ segir annar framleiðandi myndarinnar, Anna María Karlsdóttir. „Við biðjum börnin og aðstandendur þeirra innilega afsökunar á þessum drætti. Vanhöld þessi eru algerlega á okkar ábyrgð,“ útskýrir hún.Ljósband ehf., sem framleiðir Sumarbörn, er í eigu Hrannar Kristinsdóttur og Önnu Maríu Karlsdóttur. Fyrirtækið hefur áður framleitt kvikmyndir á borð við Desember og síðast, Okkar eigin Ósló með Þorsteini Guðmundssyni í aðalhlutverki. „Við höfum gert allt sem í okkar valdi stendur til að hraða því að hægt verði að greiða börnunum fyrir þeirra góðu vinnu og munum halda því áfram þar til greiðslur eru í höfn,“ segir Anna María og bætir við að hún og samstarfskona hennar, Hrönn, hafi gert alla samninga við starfsfólk í góðri trú þar sem byggt var á hefðbundinni fjármögnun sem hefur gengið eftir í þeirra fyrri verkum. „Tafir á afgreiðslu fjármagns, meðal annars frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, til myndarinnar var eitthvað sem við sáum ekki fyrir,“ heldur Anna María áfram. „En við ítrekum að það er á okkar ábyrgð að standa við gerða samninga og að því vinnum við öllum árum. Við viljum biðja alla hluteigandi afsökunar á að hafa gert samningana í þeirri trú að afgreiðsla á fjármagni yrði með vanabundnum hætti. Það voru greinilega mistök af okkar hálfu.“ Til stendur að frumsýna kvikmyndina um áramótin, en hún er langt komin í eftirvinnslu.Sumarbörn - deilanKlipparinn Stefanía Thors deildi á Facebook-síðu fyrir nokkru svokallaðri mínútumynd þar sem aðalleikkona kvikmyndarinnar Sumarbarna, sem framleidd er af Ljósbandi ehf., spyr áhorfandann hvenær hún fái eiginlega greitt fyrir sína vinnu. Í kjölfarið greindu DV og Kjarninn frá því að fjórtán börn undir tíu ára aldri, sem léku í kvikmyndinni, hafa ekki fengið greitt fyrir sína vinnu. Myndin fékk 90 milljón króna styrk úr Kvikmyndasjóði Íslands árið 2012, en heildarkostnaður við myndina er 214 milljónir. Sumarbörn er frumraun Guðrúnar Róbertsdóttur leikstjóra við kvikmynd í fullri lengd. Ellefu manns í Félagi kvikmyndagerðarfólks hafa leitað til lögfræðings vegna vangoldinna launa fyrir vinnu sína við myndina. Sumarbörn - work in progress - from Ljósband on Vimeo.
Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Ekkert offors hjá Fors Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Fleiri fréttir „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Sjá meira