Sport

Sérstök golfveðurspá: „Sjaldan koma tveir Íslendingar saman án þess að ræða veðrið og forgjöfina sína“

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Eimskip sér um veðurspánna í samstarfi við Belging.
Eimskip sér um veðurspánna í samstarfi við Belging.
Golfarar á landinu geta nú aflað sér upplýsinga um veðurspá fyrir helstu golfvelli landsins með meiri nákvæmni en áður hefur þekkst eftir að vefsíðan Golfveður var sett í loftið nú fyrr í sumar. Á vefsíðunni er einnig hægt að bóka rástíma beint.

Að vefnum standa Eimskip og Belgingur en Eimskipafélag Íslands hefur undanfarin sjö ár verið aðalstyrktaraðili Golfsambands Íslands. „Mikil aukning hefur verið í golfíþróttinni og hefur Eimskip lagt mikið upp úr því að gera umgjörð íþróttarinnar sem besta. Forvarnargildi golfíþróttarinnar er mikið og líklega er hún sú íþrótt sem flestar fjölskyldur stunda saman,“ segir í fréttatilkynningu frá Eimskip.

Í tilkynningunni kemur einnig fram að spásvæðin á vefsíðunni Golfveður séu einn ferkílómeter og þar er tekið til viðmiðunar að norski veðurvefurinn Yr birti spár fyrir sextán ferkílómetra svæði.

Ólafur William Hand upplýsingafulltrúi Eimskipafélagsins segir tvö af aðaláhugamálum landsmanna vera golf og veður. „Sjaldan koma tveir Íslendingar saman án þess  að ræða veðrið og forgjöfina sína. Það var því tilvalið að sameina þessi tvö áhugamál í einum vef og er það von okkar að vefurinn nýtist kylfingum og verði skemmtileg viðbót fyrir golfsamfélagið,“ segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×