Próflestur án áreynslu: Sérfræðingar í minni keppa um bestu aðferðina Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 4. maí 2015 13:30 Prófatímabilið stendur yfir um þessar mundir. Vísir/Getty
Hvað hentar þér best í lærdómnum, að svífa á öldum minnisins, neyta námsefnisins eins og þú værir á hlaðborði, að segja sögu eða taka fáfræði þinni opnum örmum? Þetta eru allt aðferðir sem hafa gagnast í námi þar sem leggja þarf ýmis atriði á minnið en útlistun á þeim hér að neðan. Aðferðirnar eru afurðir samkeppni sem minnissérfræðingarnir Ben Whately og Ed Cooke ýttu úr vör ásamt vísindamönnum við University College London. Samkeppnin, sem í leiðinni er viðamikil rannsókn, miðar að því að finna bestu leiðirnar til þess að auka áhrif þeirra minnisaðferða sem þeir hafa skapað eftir áralangar rannsóknir. David Robson hjá BBC skoðaði málið ítarlega. Þeir eru að leita að auðveldustu leiðunum til að leggja efni á minnið - lærdómur með lágmarks fyrirhöfn.Ýmsar aðferðir eru mögulegar til að leggja námsefni á minnið.Vísir/GettyFyrstu niðurstöður keppninnar liggja fyrir Félagarnir hönnuðu til að mynda smáforritið Memrise sem hjálpar notendum að leggja alls kyns upplýsingar á minnið. Þeir hafa mikinn áhuga á að hjálpa nemendum að nýta sér minnisaðferðir í lærdómi sínum. Fjölmargir sérfræðingar í minni voru fengnir til að taka þátt í rannsókninni með því að gera tilraunir til þess að finna auðveldustu og áhrifamestu leiðina til þess að leggja á minnið nýjar upplýsingar. Fyrstu niðurstöður samkeppninnar liggja nú fyrir og geta auðveldað mörgum nemandanum, hvort sem hann er á lokastigi í háskólanámi eða að læra frönsku sér til gamans, að leggja á minnið nauðsynlegar upplýsingar. Samkeppnin gekk út á að taka 80 orð á litháensku, læra þau á klukkutíma og muna þau síðan viku síðar. Sérfræðingarnir sem tóku þátt fengu úrtak sem nýtti þá aðferð sem þeir lögðu í keppnina og hins vegar hóp sem nýtti enga sérstaka aðferð.Mikilvægt er að læra mismunandi búta af heildarnámsefninu hverju sinni til að muna betur það sem lært er.Vísir/GettyNokkrar aðferðir duga best og virka hraðast Mörg liðanna duttu út þegar í ljós kom að aðferðir þeirra dugðu lítið sem sýnir hversu erfitt það getur verið að leggja hluti á minnið. Þau sem eftir stóðu og náðu árangri virtust ekki beita einni sérstakri aðferð heldur samsetningu af eftirfarandi aðferðum:1) Taka fáfræðinni opnum örmum Að prófa sjálfan sig á námsefninu er ein af bestu leiðunum til þess að auðvelda upprifjun seinna meir. Þessi aðferð leiddi í ljós árangur þegar viðföngin voru látin giska á þýðingu litháensku orðanna. „Þau munu alltaf hafa rangt fyrir sér í upphafi,” sagði David Shanks, einn vísindamannanna sem starfa hjá University College London. En rannsóknir sýna að með því að hafa rangt fyrir sér í upphafi manstu frekar orðið. „Það er miklu betri árangur en ef manneskjan hefði þegar verið búin að læra orðið,” útskýrði Shanks. Það virðist vera að það að viðurkenna eigin vankunnáttu fái hugann til þess að byrja að vinna og þannig tvöfaldast líkurnar á að maður muni efnið. Þetta er þekkt í sálfræðinni, þegar verkefni er örlítið erfiðara þá nær það athygli manns og þannig byggir hugurinn betri undirstöðu undir upprifjun seinna meir.2) Svífðu eins og á brimbretti á öldum minnisins Það er auðvelt að eyða tíma í að læra of mikið. Margir þátttakendur í samkeppninni skrifuðu algórisma eða reiknirit fyrir minnið til að sjá hversu sterkt það er fyrir hvert 80 orðanna. Þannig er hægt að vekja minnið á ný þegar gleymskan er farin að ná yfirhöndinni. Það er því mikilvægt að nýta innsæið til þess að læra þegar minnið er upp á sitt besta en stíga til hliðar þegar einbeitingin er lítil. Rétt eins og brimbrettamaður les hreyfingu öldunnar og stígur á brettið þegar aldan rís. Einn þátttakandi samkeppninnar prófaði sig áfram með að gefa viðfangsefnunum stuttar pásur á milli þar sem þau horfðu á myndband af fossi á meðan heilinn meðtekur upplýsingarnar. Það er ekki aðeins mikilvægt að taka stuttar pásur við lærdóminn heldur skiptir máli að nýta þær rétt.Nýttu innsæið eins og brimbrettagæi eða gella í sjónum.Vísir/Getty3) Hlaðborðslærdómur Margir þátttakendur töldu vænlegt til árangurs að skipta efninu upp í ákveðin þemu og læra hvert og eitt í sitthvoru lagi. Þannig skiptu þau orðunum upp í flokka og létu viðfangsefnin læra þau þannig. En í ljós kom að í raun er gagnlegra að fara í gegnum öll 80 orðin og læra þau þannig. Whately, fyrrnefndur forsprakki rannsóknarinnar, bendir á að þegar minnissérfræðingar leggja spilastokk á minnið gera þeir það í heilu lagi en ekki með því að skipta búnkanum upp í liti eða sortir. Rannsóknin mælir með að í hverri lærdómslotu passi nemandi upp á fjölbreytileikann. Þannig er betra að verja litlum tíma í einu í nokkur mismunandi efni yfir langan tíma heldur en að verja öllum þeim tíma í eitt efni. Sjáðu þetta fyrir þér eins og að borða á hlaðborði frekar en að setjast til borðs og neyta máltíðar þar sem réttirnir koma hver á fætur öðrum.4) Að segja söguHvers konar útlistun á námsefninun getur virkjað að nýju taugamótin og gulltryggt að upplýsingarnar séu fastar í minninu. Einn þátttakendanna bað til að mynda viðfangsefnin um að mynda sögu með orðunum sem viðkomandi var að læra. Annar nýtti tækni þar sem viðfangsefnið er látið sjá fyrir sér ákveðið herbergi þar sem orðin eru staðsett víðsvegar um herbergið og þannig lögð á minnið. Í síðarnefndu aðferðinni teiknuðu tilraunahöfundar upp mynd af stofu. Síðan gáfu þeir viðfangsefnunum til dæmis litháenska orðið „lova” sem þýðir rúm. Þá gætirðu ímyndað þér elskhuga þinn eða „lover” á sófarúmi í stofunni. Þá ætti að vera auðvelt að muna merkingu orðsins þegar leitað er í minninu. Þessi vinna er aðeins upphafið, næsta skref er síðan að leggja hugmyndirnar fyrir notendur Memrise síðunnar og þar keppa þær um verðlaunin.Aðferðirnar eiga að henta ungum sem öldnum í öllum tilgangi.Vísir/Getty
Mest lesið James Burrows látinn Bíó og sjónvarp „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Lífið Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum Lífið Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Lífið Stofnhús með opið hús í Hnjúkamóa í Þorlákshöfn Lífið samstarf Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Lífið Laufey Lín er mætt til Springfield Bíó og sjónvarp Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Lífið Tay Keith er fallinn frá aðeins 29 ára að aldri Tónlist Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Lífið Fleiri fréttir Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Sjá meira