Desemberspá Siggu Kling – Hrútur: Stökktu á spennandi tækifæri! 27. nóvember 2015 08:45
Elsku hjartans hrúturinn minn. Eins og þú ert sterkur fyrir í öllum mögulegum aðstæðum og ert svo mikill stríðsmaður þá getur þú líka látið koma þér í uppnám. Mundu bara að margt af því sem er að koma þér í eitthvert uppnám skiptir bara hreinlega engu máli. Það er mjög mikið að gerast núna sem er að breyta lífi þínu og þú ert að hugsa svo margt á öðrum nótum en vanalega. Það er mikil ást í kortunum þínum og Venus sjálf situr um hrútana og þú ert þar af leiðandi að senda alveg óvenjumikla elsku út um allt júníversið núna! Fólkið sem er í kringum þig sér á þér nýja hlið og hugsar: Ekki bjóst ég við þessu! Það er mikið af tækifærum allt í kringum þig og það sem spennir þig upp er rétta tækifærið svo stökktu bara á það! Það koma einhver skemmtileg skilaboð úr fortíðinni sem þér fannst kannski ekki skemmtileg fyrst þegar þú heyrðir eða last þau. Nú láta þau aftur á sér kræla og fá þig til að anda léttar. Öll þessi dásamlega orka víkingsins sem þú í raun og veru ert gefur þér kraftinn til þess að halda áfram. Mundu bara, elsku hrútur, að þú munt aldrei brotna, kannski bogna pínu en þú munt alltaf standa upp teinréttur jafnharðan. Það er eitthvað um lygar í kringum þig en þú skalt bara hlæja að vitleysunni sem er fólgin í þessu, lygi er alltaf lélegt vopn og hún mun rata beina leið heim til sín svo ekki vera að hafa of miklar áhyggjur af þessu. Jólamánuðurinn verður spennandi og það verður nóg af partíum sem þú skalt mæta í því að þú ert að kynnast og hitta fullt af fólki og það er eitthvað sem þú elskar að gera. Mottó verða aldrei gömul, hér vel ég tvö sterk sem þú hefur fengið áður og þau eru að sjálfsögðu enn í gildi í desember þannig að þú skalt hafa þau hugföst í mánuðinum: Halló heimur, ég er kominn! Það er ekki vandamálið sem drepur þig heldur afstaðan til þess Knús og koss, Sigga Kling Frægir hrútar: Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona, Silvía Lovetank listamaður, Marta María Jónasdóttir á Smartlandi, Björgvin Halldórsson söngvari, Kári Stefánsson vísindamaður, Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, Hugh Hefner, Birgitta Jónsdóttir Pírati, Anna Svava Knútsdóttir leikkona, Elton John söngvari, Þóra í Atlanta, Sigmar Guðmundsson sjónvarpsmaður, Berglind Pétursdóttir, Steinunn Jónsdóttir, söngkona AmabAdamA, Kristín Þorsteinsdóttir, aðalritstjóri 365 miðla.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Fleiri fréttir Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Sjá meira