Greta semur tónlist fyrir Disney Gunnar Leó Pálsson skrifar 2. mars 2015 09:00 Tónlistarkonan Greta Salóme semur tónlist fyrir næsta verkefni hjá Disney.
Tónlistarkonan Greta Salóme Stefánsdóttir undirbýr sig nú af kappi fyrir sín næstu verkefni hjá Disney og er hún meðal annars að semja tónlist fyrir fyrirtækið. „Ég er núna um borð í sama skipi og ég hef verið að undirbúa mig fyrir næstu verkefni. Það er búið að ganga ótrúlega vel og þetta hefur farið fram úr öllum væntingum,“ segir tónlistarkonan Greta Salóme. Hún hefur nú komið fram á einu stærsta skemmtiferðaskipi Disney-fyrirtækisins sem kallast Disney Dream en það tekur um 4.000 farþega og siglir á milli Flórída og Bahama-eyja. Næsta verkefni sem Greta vinnur fyrir Disney er stórt í sniðum en hún má þó ekki tjá sig of mikið um það. „Ég er nú að semja fyrir það verkefni og vinna í stúdíóinu. Þetta er stórt verkefni og ég er að vinna með til dæmis ýmsum búningahönnuðum, leikstjórum og dönsurum,“ segir Greta um verkefnið. Hún segir þó að hún gæti ferðast enn meira í tengslum við nýja verkefnið. „Mögulega mun ég koma til Íslands eitthvað næsta sumar á vegum þessa verkefnis,“ bætir Greta við og hlær. Samningurinn sem hún gerði við fyrirtækið í upphafi rann út í nóvember. „Í rauninni áttu þetta bara að vera átta vikur í upphafi en það gekk svo vel að ég er hér áfram. Ég hlakka mikið til framhaldsins, það eru spennandi tímar fram undan.“ Greta kemur til Íslands um miðjan mars og ætlar þá að einbeita sér að nýrri plötu í fríinu. „Ég nýti pásurnar í að vinna í plötunni.“ Hún vinnur plötuna með Daða Birgissyni og gerir ráð fyrir að senda frá sér fyrsta smáskífulagið af plötunni síðar í mars.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Fleiri fréttir Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Sjá meira