Verða Hörður Axel og félagar fyrstir til að vinna lið Israel Martin? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. nóvember 2015 13:45 Hörður Axel Vilhjálmsson lét ekki Pau Gasol vaða yfir sig á Eurobasket. Vísir/EPA
Danska liðið Bakken Bears er einn eitt af átta ósigruðum liðum í FIBA Europe Cup í körfubolta en í kvöld fá þeir Tékklandsmeistara CEZ Nymburk í heimsókn. Þjálfari Bakken Bears er einmitt Íslandsvinurinn Israel Martin sem gerði frábæra hluti með lið Tindastóls á síðustu leiktíð en nýliðarnir fóru þá alla leið í lokaúrslitin um Íslandsmeistaratitilinn. Hörður Axel Vilhjálmsson gekk til liðs við tékknesku meistarana á dögunum og ætlar örugglega að gera sitt til að hjálpa Nymburk-liðinu að verða fyrsta liðið til að vinna Bakken Bears í Evrópukeppninni í vetur. Bakken Bears vann tveggja stiga sigur í fyrri leik liðanna í Tékklandi, 66-64, en það er eina tap Nymburk í Evrópukeppninni. Hörður Axel skoraði 3 stig, tók 3 fráköst og gaf 2 stoðsendingar á 20 mínútum í þeim leik. Hörður Axel hefur hækkað stigaskor sitt lítillega í hverjum leik og er að komast betur inn í þetta hjá Tékkunum. Besta leikinn átti Hörður á móti Hibernia þegar hann var með 5 stig og 7 stoðsendingar. Aðeins sjö önnur lið en Bakken Bears hafa enn ekki tapað leik eftir fjórar umferðir í FIBA Europe Cup en þau lið eru frá Frakklandi (2 lið), Belgíu, Þýskalandi, Tyrklandi, Lettlandi og Úkraínu. Bæði Bakken Bears og Nymburk hafa þegar tryggt sér sæti í 32 liða úrslitunum því hin tvö liðin í riðlinum eiga ekki möguleika á því að ná þeim. Það verður því meira spilað upp á stoltið í kvöld. Það verður samt fróðlegt að sjá hvort Hörður Axel og félögum tekst að stöðva sigurgöngu strákanna hans Israels Martin í Evrópukeppninni. Leikurinn hefst klukkan 17.15 að íslenskum tíma í Vejlby-Risskov Hallen.
Körfubolti Mest lesið Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Sport Það verða tónleikar í hálfleik á úrslitum HM félagsliða Sport Konate gæti farið frítt frá Liverpool Sport HM félagsliða „farsælasta keppni í heimi“ samkvæmt Infantino Sport Dagskráin í dag: KA fer í Hafnarfjörðinn og golfið heldur áfram Sport Sigurvegarinn Þorsteinn: „Það má ekki á Íslandi“ Sport Þorsteinn Roy fyrstur í mark annað árið í röð Sport Mæssi slær enn annað metið Sport Elías Már skrifar undir hjá kínversku liði Sport Hákon skoraði tvö í vináttuleik Sport Fleiri fréttir Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn Sjá meira