Eiginkona múslima grætur stundum vegna fordóma í garð manns hennar Bjarki Ármannsson skrifar 24. nóvember 2015 18:13 Ásdís segist stundum gráta við tilhugsunina um að fólk úti í bæ hati son þeirra Usman vegna uppruna hans. Myndir/Ásdís Sigtryggsdóttir „
Við eigum að vera betri en þetta,“ skrifar Ásdís Sigtryggsdóttir, ung kona á Akranesi, í skoðanapistli sem ber heitið Mitt litla, myrka leyndarmál og hefur vakið mjög mikla athygli í dag. Usman, maður Ásdísar, er múslimi frá Pakistan og í pistlinum lýsir hún því hvernig ummæli og hegðun annarra Íslendinga í garð múslima valdi henni áhyggjum og vanlíðan. Hún gráti stundum við tilhugsunina um að fólk úti í bæ hati son þeirra Usman vegna uppruna hans. Ásdís segir fordóma- og hatursfull ummæli í garð múslima á netinu hafa valdið henni miklum óþægindum þegar hún gekk með barn þeirra Usman, en þá stóðu umræður um byggingu mosku í Sogamýrinn í Reykjavík sem hæst. „Ég eyddi og eyddi og eyddi út af feisbúkkinu mínu,“ skrifar Ásdís. „Ég tók reglulega hring á „mótmælum mosku“ grúppunni á feisbúkk til að vera viss um að ég ætti enga vini sem styddu þennan málstað. Ég reyndi að passa mig á kommentakerfunum, enda með mikið óþol fyrir hatursorðræðu. En það tókst ekki alltaf. Oftar en ekki sá ég fólk láta útúr sér, undir fullu nafni, á opinberum vettvangi, hið ótrúlegasta. Fólk, sem ég þekkti ekki neitt, var að ráðast á það sem ég unni heitast. Fólk útí bæ var svo fullt af hatri í garð ástvina minna að ég gat eiginlega ekki höndlað það.“Dæmi um ummæli sem Ásdís segist hafa tekið saman með um hálftíma leit á netinu.„Er hann nokkuð svona öfga?“ Með pistli sínum, sem birtist fyrst á síðunni fagurkerar.is, birtir Ásdís fjölmörg dæmi um ummæli úr kommentakerfum netmiðla þar sem ófögrum orðum er farið um múslima almennt. Í pistlinum kemur þó fram að ummæli á netinu séu ekki þau einu sem særi, viðbrögð vina hennar og vandamanna á sínum tíma við þeim fregnum að nýr kærasti hennar væri frá Pakistan hefðu verið þannig að hún hætti fljótt að hlakka til þess að kynna hann fyrir þeim. „Það brást varla, að sama hverjum ég sagði frá, fyrir utan Mömmu og Pabba og Kalla bróður og mjög fáa aðra vini, að svarið var á eina vegu: „Nú, er hann frá Pakistan? Er hann Múslimi?“„Ha, já, já, jú jú, hann er það“ sagði ég, með smá sting í maganum, því ég hafði aldrei verið spurð áður um trúarbrögð annara kærasta minna. „Nú, er hann nokkuð eitthvað svona öfga?“„Ha, nei, nei“ sagði ég alltaf og hló vandræðalega og í meðvirkniskasti með fordómum annara reyndi ég svo að réttlæta það að ég ætti svona hræðilega múslimskan kærasta: „Hann er sko meira svona múslimi á menningarlegum forsendum skiluruðu, svona í uppeldinu sjáðu til, hann er rosa lítið trúrækinn.“Oftast var þetta nóg. Stundum var það þó ekki.“ Ásdís segir að í eitt skipti síðasta sumar hafi kona í afmælisveislu, sem Ásdís kannaðist við, spurt út í nýjan kærasta hennar og er hún frétti að maðurinn væri múslimi sagt: „Það þykir mér leiðinlegt að heyra. Ég treysti ekki múslimum.“Usman, maður og barnsfaðir Ásdísar.Mynd/Ásdís SigtryggsdóttirEru bara að „þora að taka umræðuna“ Pistillinn er skrifaður í kjölfar fregna af því að aukinnar Íslamsfóbíu hafi orðið vart hér á landi í kjölfar hryðjuverkaárásanna í París. Meðal annars fréttar um einstæða móður frá Palestínu sem fékk ekki að leigja íbúð í Reykjavík af því að hún er múslimi. Ásdís, sem skrifaði BA-ritgerð sína í mannfræði um Íslamsfóbíu á vesturlöndum, segist ekki telja að svona fordómar þættu jafn sjálfsagðir í íslensku samfélagi um til dæmis svart fólk eða Gyðinga. „En það er einhverra hluta vegna í lagi þegar að fólk talar um múslima. Íslamófóbarnir eru nefnilega bara að „þora að taka umræðuna“ og þeir „láta ekki barnalega fjölmenningarsinna og pólitískan réttrúnað á sig fá,““ skrifar hún. „En málið er að þessi „múslimar“ sem þeir eru að tala um eru ekki bara 30.000 ISIS liðar í Sýrlandi og Írak. Þessi múslimar eru maðurinn minn og sonur minn. Þessir múslimar eru frænka mín og konan í næsta húsi. Þessir múslimar eru íslendingar, fæddir og uppaldir á Íslandi. Þessir múslimar eru fólk og fólk á ekki að þurfa að sitja undir hatursáróðri.“Lesa má pistilinn í heild sinni hér.
Mest lesið Þungir dómar í Gufunesmálinu: „Það eru ekki alltaf jólin“ Innlent Vaktin: Stefán og Lúkas dæmdir í 17 ára fangelsi Innlent „Ég hef aldrei séð svona mikið vatn í Jökulsá“ Innlent Vímuefnaneysla talin meginorsök banaslyss við Hraunsnef Innlent Yfirgáfu salinn þegar Netanjahú hóf ræðu sína Erlent Anna ljósa fallin frá Innlent Hringvegurinn í sundur vegna vatnavaxta Innlent Gat ekki lengur lesið en sagði engum frá því Innlent Telja dagana frá síðasta innbroti Innlent Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Innlent Fleiri fréttir Þungur dagur, myndir frá óveðrinu og ítrekuð innbrot Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Anna ljósa fallin frá Ásmundur Einar segir skilið við stjórnmálin Bætir þrepi við greiðsluþátttökukerfið „Ég bý ekki einu sinni í Reykjavík“ Táningsstúlkur dæmdar fyrir að flytja inn efni sem var ekki bannað Ekki liðnir níu dagar þegar það var aftur brotist inn Þungir dómar í Gufunesmálinu: „Það eru ekki alltaf jólin“ Dómsuppkvaðning í Gufunesmálinu og óveður í aðsigi Meirihluti íbúa ánægður með flutning stórtónleika á sunnudag Annar fulltrúa Framsóknar hættur í bæjarstjórn Kópavogs Vímuefnaneysla talin meginorsök banaslyss við Hraunsnef Vaktin: Stefán og Lúkas dæmdir í 17 ára fangelsi Ekki búin að ákveða hvort þjóðaröryggisráð verði kallað saman „Ég hef aldrei séð svona mikið vatn í Jökulsá“ Grindavíkurgersemin Birna Óladóttir fallin frá Kristrún í pallborði með Starmer, Carney og Albanese Hringvegurinn í sundur vegna vatnavaxta Hugmyndir kynntar um „miðstöð jaðaríþrótta“ í Toppstöðinni Telja dagana frá síðasta innbroti Rannsaka líkamsárás og fjárkúgun Gat ekki lengur lesið en sagði engum frá því „Ég má ekki heita Hrísey en ég má heita Rodriguez“ Skvísur séu almennt frekar næringarsnauðar og börnin geti orðið matvönd „Þau eru að herja á börnin okkar“ Skipulagði bæjarferðir að vestan þannig að hann kæmist í Blóðbankann Lægð sem valdi meiri usla Minna fólk á að hafa vistir til þriggja daga á heimilinu Dæmigert hundaflaut að spyrja hvort kynin séu tvö Sjá meira