Endurvekja menntaandann í Gunnarshúsi 14. janúar 2015 14:30 menningarfrömuðir Valgeir Guðjónsson og Ásta Kristrún Ragnarsdóttir reka fræðslu- og menningarsetrið Bakkastofu.fréttablaðið/daníel
Nú á nýju ári verður hinn forni menntaandi endurvakinn í Gunnarshúsi á Eyrarbakka, eins og Ásta Kristrún Ragnarsdóttir, námsráðgjafi og forstöðumaður Bakkastofu, orðar það. „Mínar ær og kýr hafa allar götur verið mannrækt. Ég hef viljað styðja við bakið á fólki til að það öðlist sterkari stöðu í lífinu og ástríða mín og eiganda Gunnarshúss, Bergljótar Kjartansdóttur myndlistarkonu og listþerapista, skarast. Bergljót er orðin sjötug og sér ekki fram á að geta gert Gunnarshús að miðstöð fyrir ungt fólk eins og hún hefði viljað. Hún bauð mér afnot af húsinu þar til það verður selt en fyrir dyrum stendur að kynna húsið til sölu aðilum sem sjá tækifæri í að nýta það á þessum forsendum,“ greinir Ásta frá. Í Gunnarshúsi, sem hýsti fyrsta barnaskólann á Íslandi, býðst grunn- og framhaldsskólanemum í upphafi nýs árs að njóta í senn fræðslu í nútímanámsaðferðum, sögustunda og náttúrunnar um kring. „Mér hefur alltaf sárnað hversu margt fólk hefur ekki náð að blómstra í námi þótt það hafi getu til. Við Bergljót ræddum hvaða leiðir væru færar en margir hafa áhyggjur af stöðu íslenskra nemenda, meðal annars vegna dvínandi lesskilnings og einbeitingar. Upp frá því vaknaði hugmyndin um að bjóða upp á tveggja daga námshvetjandi fræðslu um helgar.“ Að sögn Ástu Kristrúnar tekur námshelgin til markvissra náms- og lestraraðferða. „Nemendur fá í hendur nýtt vefforrit sem nefnist Nemanet. Það styður við skilvirkar náms- og lestraraðferðir og tendrar áhuga notandans við heimanám eða sjálfsnám en forritið er byggt á aðferð sem ég hef þróað á yfir þrjátíu ára tímabili í leiðsögn minni við nemendur um bættan árangur í námi.“ Fræðslan verður einnig í Bakkastofu, fræðslu- og menningarsetri Ástu Kristrúnar og Valgeirs Guðjónssonar tónlistarmanns. Fyrirhugað er að fræðsluhelgarnar verði til marsloka.ibs@frettabladid.is
Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Ekkert offors hjá Fors Lífið Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Kát á kynfræðslukarnivali Menning Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Fleiri fréttir Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Sjá meira