Innlent

Rósa mun leiða listann

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Rósa fékk 597 atkvæði í fyrsta sætið.
Rósa fékk 597 atkvæði í fyrsta sætið. vísir/stefán
Rósa Guðbjartsdóttir sigraði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði í kvöld og mun því leiða listann í sveitastjórnarkosningunum í vor. Í öðru sæti var Kristinn Andersen og Unnur Lára Bryde var í því þriðja.

Rósa fékk 597 atkvæði í fyrsta sætið og Kristinn 603 atkvæði í 1. til 2. sæti. Unnur fékk 467 atkvæði í 1. til 3. sætið, Ingi Tómasson 566 atkvæði í 1. til 4. sæti, Helga Ingólfsdóttir 648 atkvæði í 1. til 5. sæti og Kristín Thoroddsen 810 atkvæði í 1. til 6. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×