„Menn munu fylgjast vel með í kvöld“ Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 1. febrúar 2014 22:37 Vinkona Jóhanns lenti í því um daginn á skemmtistað í Reykjanesbæ að ólyfjan var laumað í glas hennar.
Jóhann D. Bianco, íbúi í Keflavík, hvetur Keflvíkinga og Suðurnesjamenn til þess að vera á varðbergi fyrir vafasömum einstaklingum á skemmtistöðum bæjarins í kvöld, jafnt sem önnur kvöld. Hann leggur til að tekið verði upp svokallað „buddy system“ þar sem djammarar í Reykjanesbæ, og reyndar á landinu öllu, fylgjast með sínum nánustu, sem og öðrum í kringum þá. „Þetta er ástand sem er nýtilkomið hér í Keflavík,“ segir Jóhann, og vísar þá til frétta af lyfjum sem laumað hefur verið í drykki fólks á skemmtistöðum undanfarið. Jóhann skrifaði færslu á Facebook þar sem hann ávarpar íbúa á Suðurnesjunum og hvetur til hópátaks. „Við þurfum að láta alla okkur varða og láta dyraverði vita um leið og við verðum vör við eitthvað vafasamt,“ segir hann í samtali við Vísi. Vinkona Jóhanns lenti í því um daginn á skemmtistað í Keflavík að ólyfjan var laumað í glas hennar. Jóhann var að skemmta sér með henni það kvöld. „Hún var á allt öðru leveli en vanalega. Það var búið að setja eitthvað í drykkinn hennar. Það var farið með hana á sjúkrahús og síðan tók lögreglan skýrslu. Þá fóru menn að líta í kringum sig. Það eru búnir að vera einhverjir útlendingar á vappi í kringum stelpurnar, að stela símum og fleira. Ég ætla ekki að persónugera neitt eða saka einhvern ákveðinn hóp um þetta, en ég neita að trúa því að það séu einhverjir Íslendingar á Suðurnesjunum að gera þetta. En auðvitað veit maður aldrei. Menn munu allavega fylgjast vel með í kvöld og næstu helgar“
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Sjá meira