Sinnti tígrisdýrahvolpum í munkahofi í Taílandi Marín Manda skrifar 14. apríl 2014 10:30 Ása Björg Ásgeirsdóttir gæti vel hugsað sér að fara aftur í munkahofið. Mynd/Úr einkasafni
Ása Björg ræktar ketti en ákvað að kynnast tígrisdýrum í Taílandi í sjálfboðavinnu. Hún fékk að huga að litlum hvolpum sem mæðurnar höfðu afneitað. Eftir að hafa lesið grein í Fréttablaðinu um stúlkur sem unnu með tígrisdýrum í Taílandi ákvað Ása Björg Ásgeirsdóttir að láta drauminn rætast og sækja um sjálfboðavinnu í gegnum Tigertemple.org hjá Forest Monastery skammt frá bænum Kanchanaburi í Taílandi. Í mars fékk hún frí úr vinnunni hjá Reiknistofu bankanna, pantaði sér flugmiða og hélt á vit ævintýra á meðan kærastinn beið heima. „Þetta var reynsla sem ég hefði alls ekki viljað missa af og get vel hugsað mér að fara þangað aftur. Þetta var bara ótrúlegt að geta verið svona nálægt þessum dýrum og fá að sinna þeim og knúsa þau,“ segir Ása sem hefur mikla ástríðu fyrir köttum. Saga tígrisdýranna í munkahofinu Forest Monastery hófst fyrir fimmtán árum þegar bæjarbúar stálu tveimur tígrishvolpum frá uppstoppara og földu hjá munkunum til að bjarga lífi þeirra. Í dag eru í kringum 140 tígrisdýr í hofinu en kven- og karldýrin fá að vera saman öllum stundum. Dýrunum er sinnt vel en þau fá soðinn kjúkling daglega ásamt vítamínum og fæðubótarefnum.Ása Björg Ásgeirsdóttir„Við fengum að huga að litlu hvolpunum sem mæðurnar hafa afneitað því það virðist vanta móðureðli í tígrisdýramæðurnar þegar þær eru í haldi,“ segir Ása Björg. Mánaðardvölin leið hratt þar sem hún hugleiddi með munkunum á kvöldin og sinnti tígrisdýrahvolpum á daginn. „Þetta var allt voðalega notalegt þótt ég hafi fengið töluverða marbletti eftir hvolpana. Þeir eru bara eins og litlir krakkar og þurfa að setja allt upp í munninn – en hafa aðeins sterkara bit,“ segir hún hlæjandi.
Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Glee snýr aftur Bíó og sjónvarp Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Fleiri fréttir Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Sjá meira