Spennandi tækifæri í leikhúsinu Baldvin Þormóðsson skrifar 14. apríl 2014 12:00 Ilmur Stefánsdóttir, leikmyndahönnuður. mynd/einkasafn „
Meginhugmyndin er að hér fá hinir ýmsu sviðshöfundar tækifæri til þess að fá að vinna aðeins opnari vinnu,“ segir Ilmur Stefánsdóttir, leikmyndahönnuður í Borgarleikhúsinu, en bryddað verður upp á þeirri nýjung á næsta leikári að sviðshöfundar geti sótt um að vera gestalistamenn í leikhúsinu. „Sviðshöfundur getur verið dansari, myndlistamaður, tónlistarmaður en í þessu tilfelli er ramminn að viðkomandi listamenn búi til sviðsverk,“ segir Ilmur. Sviðshöfundarnir koma til með að fá rými innan hússins til þess að þróa sínar hugmyndir og afraksturinn verður síðan kynntur sem verk í vinnslu. „Hér eru vanalega gerðar fullkláraðar sýningar og þær sýndar en þetta verkefni er mótað til þess að styðja við ákveðna grósku, að kannski megi vinna opnari og meira leitandi vinnu og opna síðan dyrnar fyrir gestum,“ segir Ilmur sem mun virka sem tengiliður milli hússins og sviðshöfundanna en hver þátttakandi fær einn mánuð í húsinu til þess að vinna verkið. „Síðan getur fólk sem kaupir sér árskort í leikhúsið valið allar þrjár vinnustofusýningarnar sem eina venjulega sýningu,“ segir Ilmur en þrír sviðshöfundar fá tækifæri til þess að spreyta sig í leikhúsinu. Ilmur segir verkefnið vera spennandi tækifæri fyrir listamenn og hvetur alla til þess að sækja um en umsóknarferlið verður auglýst síðar.
Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Glee snýr aftur Bíó og sjónvarp Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Fleiri fréttir Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Sjá meira