Leikmannamarkaðurinn á Íslandi opnast aftur 15. október næstkomandi og það má búast við að flest ef ekki öll liðin í Pepsi-deildinni ætli sér að styrkja hópinn.
Tími nokkurra leikmanna er liðinn á sumum stöðum og sumir leikmenn hafa komið sér í betri samningsstöðu með flottri frammistöðu í sumar. Hjá sumum snýst dæmið líka um að finna sér rétta staðinn og réttu aðstæðurnar til þess að blómstra.
Fréttablaðið hefur litið yfir hóp leikmanna með lausan samning og fundið út hverjir séu feitustu bitarnir á markaðnum í vetur. Við skiptum hópnum í þrjá flokka en þá er ekki hægt að útiloka að samningsbundnir leikmenn gangi á kaupum á sölum á milli félaga.
Stjarnan, FH, KR og Víkingur búa að því að geta reiknað með Evrópu-peningum og Íslandsmeistarar Stjörnunnar eru enn fremur í frábærum málum fjárhagslega eftir magnað Evrópusumar.
ÍA og Leiknir eru bæði að koma upp í Pepsi-deildina og það má búast við að menn þar á bæ ætli sér að styrkja leikmannahópinn fyrir átökin í efstu deild.
Bestu leikmennirnir með lausa samninga fá því örugglega mörg símtöl á næstu vikum og margir þeirra geta eflaust valið úr tilboðum.
Feitustu bitarnir á leikmannamarkaði Pepsi-deildar karla:

23 ára miðjumaður
Líklegast KR
Besti kosturinn FH
Finnur Orri Margeirsson er á tímamótum samkvæmt orðinu á götunni og líklega á leiðinni frá Blikum þrátt fyrir að vanta aðeins þrjá leiki til að jafna félagsmet Arnars Grétarssonar. Finnur Orri er enn ungur þrátt fyrir að vera kominn með mikla reynslu og því góður kostur fyrir lið sem þurfa að styrkja miðjuna. Líklegast er að KR-ingar kræki í kappann en besti kosturinn fyrir hann væri þó að fara í FH. Hann fer væntanlega aldrei í minna félag en KR eða FH.

32 ára miðjumaður
Líklegast Víkingur
Besti kosturinn Víkingur
Igor Taskovic var magnaður í sumar og fór öðrum fremur fyrir sókn nýliðanna úr Víkinni sem tryggðu sér sæti í Evrópukeppninni. Igor er án vafa mikilvægasti leikmaður Víkingsliðsins og því væri stórslys ef menn þar á bæ missa hann yfir í annað lið. Það er því langlíklegast að hann verði áfram með fyrirliðaband Víkings næsta sumar en væntanlega á mun betri samningi.

28 ára miðvörður
Líklegast Stjarnan
Besti kosturinn Stjarnan
Daníel Laxdal missti fyrirliðabandið fyrir tímabilið en upplifði á móti sína stærstu stund þegar hann varð Íslandsmeistari með uppeldisfélaginu sínu. Það er erfitt að sjá leikjahæsta Stjörnumanninn í efstu deild spila fyrir nokkurt annað félag en Stjörnuna og Garðbæingar eru örugglega tilbúnir með nýjan ásættanlegan samning fyrir hann. Bestu liðin í deildinni myndu þó örugglega taka honum opnum örmum.

30 ára kantmaður
Líklegast KR
Besti kosturinn FH
Óskar Örn Hauksson var svo gott sem farinn frá KR á láni til Vålerenga í lok ágúst en ekki tókst að ganga frá félagsskiptunum áður en glugginn lokaðist. Það er langlíklegast að KR-ingar semji aftur við þennan snjalla leikmann enda ekki gott að missa hann til aðalkeppinautanna. Það væri hins vegar afar athyglisvert að sjá hann á kantinum hjá FH við hlið Stevens Lennon og Atla Guðnasonar.
Aðrir fínir bitar

34 ára framherji
Líklegast: FH
Besti kosturinn: Breiðablik
Vantar aðeins tvö mörk í 100 mörkin en hann skorar ekki mörg mörg sitjandi á bekknum. Gæti orðið fyrstur til að spila 200 leiki og skora 100 mörk fyrir sama félagið og því gæti verið erfitt að fara frá FH.
Hólmar Örn Rúnarsson
33 ára miðjumaður
Líklegast: FH
Besti kosturinn: KR
Átti fínt tímabil á miðju FH og kom sterkur til baka eftir að hafa misst úr heilt tímabil vegna meiðsla. Hólmar fékk ekki mikið að spila framan af en var fastamaður í seinni hlutanum sem gæti þýtt nýjan samning í Krikanum.
Ingimundur Níels Óskarsson
28 ára kantmaður
Líklegast: Fylkir
Besti kosturinn: Fylkir
Ingimundur Níels endaði tímabilið sem byrjunarliðsmaður en hefur verið inn og út úr byrjunarliðinu síðustu ár. Hefur ekki alveg náð að stíga næsta skref í mikilli samkeppni í FH og til greina gæti komið að snúa aftur til Fylkis þar sem hann átti sín bestu ár.
Brynjar Gauti Guðjónsson
22 ára miðvörður
Líklegast: Stjarnan
Besti kosturinn: Stjarnan
Brynjar Gauti er líklega á leiðinni upp á land eftir fjögur ár í Eyjum og fínn kostur fyrir Íslandsmeistarana úr Garðabænum sem þurfa væntanlega að fylla skarð Martins Rauschenberg. Stór og sterkur strákur sem hefur öðlast mikla reynslu á tíma sínum undir Hásteini.
Iain Williamson
26 ára miðjumaður
Líklegast: Valur
Besti kosturinn: Breiðablik
Williamson er harðgerður skoskur miðjumaður sem væri frábær kostur fyrir lið eins og Breiðablik sem er væntanlega að missa Finn Orra Margeirsson. Valsmenn vilja örugglega halda honum en önnur lið gætu freistað bjóði þau honum góðan samning.
Grétar Sigfinnur Sigurðarson
32 ára miðvörður
Líklegast: Valur
Besti kosturinn: Víkingur
Grétar Sigfinnur fær ekki nýjan samning hjá KR en vonast eflaust eftir að fá annað tækifæri til að sýna Vesturbæingum að hann á enn mikið eftir. Grétar hefur sýnt það að hann er aldrei betri en þegar hann þarf að sanna sig eins og sást með KR á 2013-tímabilinu.
Ekki má gleyma þessum …
Markmenn á lausu
Ingvar Þór Kale
Sandor Matus
Varnarmenn á lausu
Arnór Eyvar Ólafsson
Aron Bjarki Jósepsson
Ásgeir Eyþórsson
Bjarni Ólafur Eiríksson
Niclas Vemmelund
Miðjumenn á lausu
Andrew Sousa
Finnur Ólafsson
Sigurður Egill Lárusson
Halldór Hermann Jónsson
Sóknarmenn á lausu
Rolf Toft
Hörður Sveinsson
Chukwudi Chijindu
Athugið: Þetta er ekki tæmandi listi leikmanna með lausan samning.