Framleiðsla á dísilolíu gæti hafist í Helguvík Haraldur Guðmundsson skrifar 4. júlí 2014 07:00 Búið er að frumhanna verksmiðjuna þar sem sjá má merki G2.
Um tíu þúsund fermetra verksmiðja sem myndi framleiða dísilolíu úr notuðum dekkjum gæti risið í Helguvík á næstu árum. Forsvarsmenn verkefnisins hafa skrifað undir viljayfirlýsingu við Reykjaneshöfn um lóð á iðnaðarsvæðinu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins gera áætlanir þeirra ráð fyrir verksmiðju sem gæti framleitt um 40 milljónir lítra af dísilolíu á ári. Olían yrði framleidd fyrir innanlandsmarkað. Verkefnið ber vinnuheitið G2 en það hefur verið í undirbúningi í um eitt ár. Áætlaður byggingarkostnaður er um 4,5 milljarðar króna.Helguvík Reykjaneshöfn hefur úthlutað lóðum undir tvö kísilver, vatnsverksmiðju og álver. Fréttablaðið/GVAVerksmiðjan mun búa yfir nýrri tækni sem breytir kurluðum gúmmídekkjum í dísilolíu í framleiðsluferli sem nefnist hitasundrun (e. pyrolysis) þar sem hiti orsakar umbreytingu efna úr einu formi í annað. Við framleiðsluna myndast einnig aska og gas. Verksmiðjan yrði að hluta til knúin með gasinu en einnig rafmagni. Askan yrði flutt út og seld í frekari iðnaðarframleiðslu. Ingvar Eyfjörð, einn forsvarsmanna verkefnisins, staðfestir vilyrðin fyrir lóð í Helguvík. Hann segist ekki vilja tjá sig nánar um stöðu verkefnisins en tekur fram að það sé grænt, útblástur verksmiðjunnar verði lítill og að framleiðslan breyti mengandi sorpi í umhverfisvænna eldsneyti. „Við erum að horfa á Helguvík því aðstæður þar eru mjög góðar. Þar er búið að byggja upp iðnaðarsvæði með höfn og öðrum innviðum sem hentar starfseminni vel,“ segir Ingvar.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira