Fimmaurabrandarar gleðja 12 þúsund Íslendinga Kjartan Atli Kjartansson skrifar 3. febrúar 2014 11:46 Kristján er hér í gervi Svarthöfða. „
Upphaflega stofnaði ég þennan hóp fyrir nokkra vini mína, en svo vatt þetta svona rosalega upp á sig,“ segir Kristján B. Heiðarsson, stofnandi Fimmaurabrandarafjelagsins á Facebook. 12 þúsund manns eru nú skráðir í hópinn, sem er innan við ársgamall; var stofnaður í mars í fyrra. „Ég vaknaði einn morguninn og hugsaði: „Jæja, hvað get ég gert sniðugt í dag?“ Ég ákvað að bjóða nokkrum vinum í hópinn sem ég vissi að hefðu gaman af orðagríni og útúrsnúningum. Þeim þótti hugmyndin góð og buðu fleiri vinum sínum og hópurinn stækkaði og stækkaði.“ Stærri hópur þýðir meira utanumhald fyrir Kristján. Reglur hópsins eru skýrar: Brandarar eiga helst að vera á íslensku og hæfa öllum aldurshópum. Kynþóttafordómar þýða tafarlausan brottrekstur úr hópnum. „Ég er með þrjá menn með mér í því að fara yfir alla brandara sem koma inn. Við viljum forðast endurtekningar og pössum upp á að farið sé eftir reglunum,“ útskýrir Kristján. Hann segir erfitt að velja einn brandarann sem hefur verið settur inn á síðu hópsins sem þann besta. „En einn þráður stendur upp úr. Það er þráður tileinkaður Hringadróttinssögu. Ég hvet fólk til þess að kíkja á hann inni í síðu hópsins.“ Kristján segist vera glaður að hafa fengið svona marga til þess að brosa. „Þegar ég hitti fólk á förnum vegi sem veit að ég stofnaði þennan hóp þá fæ ég að heyra hvað þetta sé mikill gleðigjafi fyrir marga. Fólk segist hlæja mikið af þessu. Mér finnst það ákaflega ánægjulegt.“
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Sjá meira