16,6 milljónir til neyðaraðstoðar í Sýrlandi Samúel Karl Ólason skrifar 3. febrúar 2014 15:37 Talið er að 4,2 milljónir manna séu á vergangi í Sýrlandi. Vísir/AP Images
Hjálparstarf kirkjunnar sendi 16,6 milljónir króna til neyðaraðstoðar við stríðshrjáða í Sýrlandi. Þar af veitti Utanríkisráðuneytið 15 milljóna króna styrk og Hjálparstarfið ráðstafaði 16 milljónum króna af söfnunarfé til verkefnisins. Framlaginu verður varið til aðstoðar við heimilislaust fólk á vergangi í eigin landi og flóttafólk í nágrannalöndum Sýrlands. Verkefnið nær til 198.715 manns. „Markmið verkefnisins er að sinna grunnþörfum íbúanna með því að veita þeim matarðstoð og aðstoð við að halda heimili, tryggja þeim aðgang að heilsugæslu, halda úti skólastarfi fyrir börn og síðast en ekki síst með því að veita börnum og unglingum sálrænan stuðning. Ungu flóttafólki frá Sýrlandi sem dvelur í búðum og ungu fólki frá móttökuþjóðum er þannig hjálpað til að takast á við aðstæður á jákvæðan hátt en þannig er leitast við að draga úr neikvæðum áhrifum stríðsástandsins á umhverfið,“ segir í tilkynningu frá Hjálparstarfi kirkjunnar. Fram kemur í tilkynningunni að talið sé að 33 prósent sýrlensku þjóðarinnar eða um 6,8 milljónir þurfi neyðaraðstoð. Þá gerir verðbólga og hátt verðlag fátækum mjög erfitt að afla nauðþurfta og heilsugæsla er í lamasessi. „4,2 milljónir Sýrlendinga eru á vergangi, búa mjög þétt með öðrum t.d. í skólum eða moskum, eða sér, í skemmdum eða ónýtum húsum og hafa orðið að skilja allar eigur eftir við flóttann. 1,8 milljónir landsmanna eru skráðir flóttamenn í nágrannlöndum. Talið er að um 200.000 manns séu óskráðir og teljast þeir til þeirra verst settu. Skólaganga er lítil og stopul hjá öllum börnum á átaksvæðum og þar sem flóttafólk er margt.“
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Sjá meira