Lífið

Slekkur þegar það er fótbolti á skjánum

Theodóra Mjöll Skúladóttir Jack
Theodóra Mjöll Skúladóttir Jack
Þegar ég var ung þá…fannst mér ég vita og skilja allt.

En núna… er ég búin að fatta að ég mun aldrei skilja neitt né vita fullkomlega.



Ég mun eflaust aldrei skilja…sjálfa mig heldur ha, ha.



Ég hef ekki sérstakan áhuga á…því að vinna við eða gera eitthvað sem gerir mig ekki hamingjusama.



Karlmenn eru… jafn misjafnir og þeir eru margir. Alveg eins og við konurnar.



Ég hef lært að maður á alls ekki að… vera vondur, óheiðarlegur, þröngsýnn, ósanngjarn og ofhugsa hlutina. Þannig verður maður aldrei hamingjusamur og aldrei sáttur við tilveruna.

Ég fæ samviskubit þegar… ég sinni ekki fólkinu í kringum mig nægilega mikið og þegar ég borða of mikið af óhollustu.



Ég slekk á sjónvarpinu þegar… það er fótbolti eða raunveruleikaþáttur.

Um þessar mundir er ég mjög upptekin af… því að skipuleggja mig og ná sem mestri vinnu úr tímanum sem ég hef á daginn. Einnig er ég að reyna að borða hollt, eyða meiri tíma með fjölskyldunni, sinna vinunum betur og fara í ræktina. Gangi mér vel.



Ég vildi óska þess að fleiri vissu af…því hvað þátturinn Parks and Recreation er óhugnanlega fyndinn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.