Aldrigde fór á kostum í sigri Portland Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. apríl 2014 11:18 Leikmenn Houston Rockets áttu fá svör við LaMarcus Aldrigde í nótt. Vísir/Getty
Fyrsta umferð úrslitakeppni NBA-deildarinnar hélt áfram í nótt. Portland sigraði Trail Blazers Houston Rockets 122-120, eftir framlengdan leik. LaMarcus Aldrigde fór á kostum í liði Portland og skoraði 46 stig og tók 18 fráköst. Leikstjórnandinn Damian Lillard kom næstur með 31 stig í sínum fyrsta leik í úrslitakeppni. James Harden og Dwight Howard skoruðu mest fyrir Houston, eða 27 stig hvor. Howard tók auk þess 15 fráköst. San Antonio Spurs vann fimm stiga heimasigur, 90-85, á nágrönnum sínum í Dallas Mavericks þar sem gamla brýnið Tim Duncan átti stórleik. Duncan skoraði 27 stig og tók sjö fráköst, en næstur kom Frakkinn Tony Parker með 21 stig. Devin Harris var stigahæstur Dallas-manna með 19 stig, en Dirk Nowitzki, stigahæsti maður liðsins í vetur, skoraði aðeins 11 stig í leiknum. Washington Wizards vann Chicago Bulls á útivelli, 102-93, og tók þar með forystuna í einvígi liðanna. Brasilíumaðurinn Nene skoraði 24 stig fyrir Washington og tók átta fráköst. Trevor Ariza kom næstur með 16 stig, en sex leikmenn Washington-liðsins skoruðu tíu stig eða fleiri. Kirk Heinrich og D.J. Augustin skoruðu 16 stig hvor fyrir Chicago. Þá höfðu meistarar Miami Heat betur gegn Charlotte Bobcats á heimavelli, 99-88, en þetta var 17. sigur Miami á Charlotte í röð. LeBron James fór fyrir meisturunum og skoraði 27 stig og tók níu fráköst. Dwayne Wade kom næstur með 23 stig. Kemba Walker var atkvæðamestur Charlotte-manna, en hann skoraði 20 stig, tók sex fráköst og gaf fimm stoðsendingar.
Körfubolti Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira