Bankaskattur lendi á almenningi 21. janúar 2014 15:33 Friðrik Már Baldursson vísir/gva
Bankaskattinum er ætlað að fjármagna að hluta skuldaaðgerðir ríkisstjórnarinnar. Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis samþykkti sérstakt frískuldamark til að draga úr skattbyrði smærri fjármálafyrirtækja. Friðrik Már Baldursson, prófessor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík, segir ekki alveg ljóst hvers vegna skatturinn komi smærri fjármálafyrirtækjum illa. „Ég á dálítið erfitt með að skilja það. Flatur skattur á skuldir starfandi fjármálafyrirtækja er fyrst og fremst skattur á innlán. Ég sé ekki alveg hvernig það getur komið þyngra niður á þeim smærri heldur en þeim stærri. Nú gæti einhver bent á að það sé stærðarhagkvæmni í fjármálaþjónustu, þ.e. samkeppnisstaða stærri banka sé betri og þetta sé á einhvern hátt gert til að leiðrétta það. En þá Þá mætti spyrja hvers vegna ekki gera þetta víðar? Til dæmis lækka virðisaukaskatt á smærri fyrirtæki?" segir Friðrik. Friðrik tekur fram að hann sé ekki búinn að lesa umsögn sparisjóðanna sem var send efnahags- og viðskiptanefnd þegar bankaskatturinn var þar til umfjöllunar. Hann segir að fjármálamarkaðurinn á Íslandi sé mjög óhagkvæmur í norrænum samanburði. Almenningur muni á endanum borga bankaskattinn. Vextir á útlánum hækka og vextir á innlánum lækka. „Almenningur mun bera þessa skattheimtu eða þann hluta sem leggst á starfandi fjármálafyrirtæki. Það er erfitt að sjá annað,“ segir Friðrik.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira