Glórulausar samsæriskenningar að sögn Kristins Hrafnssonar Jakob Bjarnar skrifar 21. janúar 2014 16:09 Kristinn Hrafnsson segir að J Edgar Hoover sjálfur hefði orðið stoltur af þeim samsæriskenningum sem The New Republic bjóða uppá um Wikileaks og Snowden.
Uppljóstrarinn Edward Snowden og aðrir uppljóstrarar eru sakaðir um ranghugmyndir og öfgaskoðanir í nýrri og ítarlegri fréttaskýringu The New Republic. Þar segir meðal annars að búið sé að gera mun meira úr aðgerðum bandarísku Þjóðaröryggisstofnunarinnar (NSA) en tilefni er til. Vísir greindi frá þessu fyrr í dag en í fréttaskýringunni er jafnframt fjallað um að það að Snowden hafi fengið pólitískt hæli í Rússlandi hafi borið að með sérkennilegum hætti. Snowden hafði tilkynnt að miklu umfangsmeiri uppljóstranir væru í vændum, meðal annars um Rússa. Í viðtali við Izvestia, sem áður var ríkisfjölmiðill í Rússlandi, segir Snowden að fyrir liggi upplýsingar um stjórn og viðskiptajöfra landsins. Samdægurs, en þetta er í október 2010, segir The New Republic að Kristinn Hrafnsson hafi sagt í viðtali að „Rússar eigi eftir að verða margs vísari um land sitt.“Samsæriskenning af hæsta styrkleika Blaðamenn The New Republic vekja á því athygli að þessar upplýsingar hafi aldrei komið fram og Rússar hafi gerst helstu stuðningsmenn Snowdens. Sjá nánar hér. Hvað varð um þessar upplýsingar? „Mér sýnist að tilvitnunin í mig sé frá upphafi Cablegate 2010 þar sem ég lagði áherslu á að skjölin snertu nánast öll ríki veraldar þar með talið Rússland,“ segir Kristinn og vísar þessum ávirðingum á bug – fráleitt sé að ætla að fyrir pólitískt hæli Snowdens hafi verið greitt með upplýsingum. „Á næstu 11 mánuðum var þessum upplýsingum miðlað í samstafi við +100 fjölmiðla um allan heim. Í lok sumars 2011 voru svo öll sendiráðsskeytin birt, þar með talin skeyti sem vörðuðu rússneska hagsmuni og stjórnvöld þar í landi. Hvar er þögnin? Og í skiptum fyrir hæli manns sem kom fram sumarið 2013 eftir að hafa miðlað upplýsingum til Glenn Greenwald og Lauru Poitras. Þetta er dásamleg samsuða í samsæriskenningu af hæsta styrkleika.“Holótt og galið Kristinn spyr hversu oft þurfi að benda á hið augljósa: „Snowden var á leið til Suður Ameríku í gegnum Moskvu þegar bandarísk stjórnvöld ógiltu vegabréfið hans og gerðu hann að strandaglópi þar í landi. Þessi grein er ótrúleg samsuða sem reynir að klæða í fræðibúning galna kenningu um heilmikið samsæri þar sem menn gera því skóna að WikiLekas hafi 2010 eða fyrr undirbúið atburðarás 2013 með Snowden. Þetta er svo holótt og galið að maður fyllist nánast aðdáun yfir hugmyndafluginu.“ Og Kristinn heldur áfram: „Þetta er svo allt kryddað með ad hominem árásum á Snowden, Greenwald og Assange í formi sparðasamtínings sem J Edgar Hoover hefði verið stoltur af. Grunnþesan í þessari grein er að persónur og leikendur séu grandplottarar í skipulagðri og þaulhugsaðri árás á grunnstoðir frjálslyndra lýðræðisríkja. Mann gæti verkjað í hausinn við að hugsa út hvað í ósköpunum fær menn til að detta í svona fabúlasjónir. Nema maður líti bara til þess að vinsældir Obama hafa hríðfallið frá því upplýsingar Snowden byrjuðu að koma fram í sumar.“
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Innlent Fleiri fréttir „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Sjá meira